Baltasar Kormákur er sagður í viðræðum við bandaríska kvikmyndaverið um að leikstýra myndinni Deeper. Myndin mun segja frá fyrrverandi geimfara sem er ráðinn til að sigla kafbát á dýpsta svæði hafsins. Yfirnáttúrulegir hlutir eiga sér stað þegar geimfarinn nálgast áfangastaðinn.
Greint er frá þessu á vef Variety en þar eru tökur sagðar eiga að hefjast í vor.
Handritshöfundur myndarinnar er Max Landis, sem á að baki handrit að myndunum Bright, American Ultra og Chronicle, og mun David Goyer og Kevin Turren vera á meðal framleiðenda.
MGM eignaðist réttinn að handritinu árið 2016 en þá hafði Bradley Cooper skuldbundið sig til að fara með aðalhlutverk myndarinnar. Gal Gadot var einnig orðuð við hlutverk í myndinni.
Cooper gat að lokum ekki leikið í myndinni sökum annarra verkefna. Vonast MGM til að ráða annan leikara í aðalhlutverkið sem er af sömu stærðargráðu og Cooper.
Baltasar er öllum hnútum kunnugur þegar kemur að því að gera myndir úti á hafi. Hann leikstýrði myndinni Djúpið en síðasta mynd hans, Adrift, gerðist einnig að stórum hluta úti á hafi.
Baltasar sagður í viðræðum um að leikstýra yfirnáttúrulegri köfunarmynd

Tengdar fréttir

Baltasar um næsta verkefni: „Hitnaði að innan þegar ég las handritið“
Gerir mynd um áhöfn Greenpeace-skipsins Arctic Sunrise sem var handtekin af Rússum árið 2013.