Khashoggi, sádiarabískur blaðamaður sem hefur verið gagnrýninn á stjórnvöld í heimalandinu, var drepinn á ræðisskrifstofu Sáda í Istanbúl 2. október. Tyrknesk yfirvöld viðruðu fljótlega grun um að Sádar hefur myrt Khashoggi.
Því höfnuðu stjórnvöld í Ríad hins vegar alfarið og héldu því fram að Khashoggi hefði yfirgefið ræðisskrifstofuna sama dag og hann kom þangað. Eftir því sem frekari sannanir komu fram sem sýndu fram á það andstæða viðurkenndu Sádar loks að Khashoggi hefði látist á ræðisskrifstounni. Það hefði hins vegar gerst óvart þegar til átaka kom á milli hans og hóps manna.
Utanríkisráðherra Sádi-Arabíu sagði svo um helgina að Khashoggi hefði verið myrtur en þeir sem væru ábyrgir hefði gert það án leyfis eða skipana frá konungsfjölskyldu landsins.
Recep Erdogan, forseti Tyrklands, fullyrti í morgun að morðið á Khashoggi hefði verið skipulagt. Athygli vakti að Erdogan tók sérstaklega fram að hann tryði Salman Sádakonungi um að hann hefði ekki vitað af morðinu en minntist ekkert á Mohammed bin Salman krónprins sem hefur verið sterklega bendlaður við morðið.
Nokkrir úr hópi meintra morðingja Khashoggi sem ferðuðust frá Sádi-Arabíu til Istanbúl daginn sem hann var myrtur eru sagðir tengdir krónprinsinum.

Aðgerðir Bandaríkjanna í höndum Trump forseta
Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, staðfesti í dag að Haspel hefði verið send til Tyrklands til að afla frekari upplýsinga um dauða Khashoggi. Bandaríkjastjórn hefur verið hikandi við að gagnrýna bandamenn sína í Sádi-Arabíu vegna morðsins.Varaforsetinn sagði að dauði blaðamannsins myndi ekki „líða hjá án viðbragða frá Bandaríkjunum“ í viðtali á viðburði sem Washington Post stóð fyrir í dag. Hann lýsti þó ekki frekar hver viðbrögð Bandaríkjastjórnar gætu orðið.
Þegar Pence var spurður hver viðbrögðin yrðu kæmi í ljós að konungsfjölskylda Sádi-Arabíu væri meðsek í morðinu sagði varaforsetinn að það væri ákvörðun Donalds Trump forseta. Sú ákvörðun myndi endurspegla gildi og þjóðarhagsmuni Bandaríkjanna og tryggja að „heimsbyggðin fengi að vita það sanna“.
Khashoggi var með dvalarleyfi í Bandaríkjunum og bjó í Virginíuríki, nærri Washington-borg. Skrifaði hann meðal annars pistla fyrir Washington Post.

Fregnir um að líkamsleifar Khashoggi hafi fundist
Salman konungur Sádi-Arabíu og Mohammed bin Salman krónprins tóku á móti tveimur sonum Khashoggi og vottuðu henni virðingu sína í konungshollunni í Ríad dag. AP-fréttastofan hefur eftir vin fjölskyldunnar að annar bræðranna hafi verið í farbanni í Sádi-Arabíu síðasta árið.Viðskiptaráðstefna sem Sádar skipuleggja fór fram í dag þrátt fyrir að fjöldi alþjóðlegra stórfyrirtækja og erlendra embættismanna hefðu afboðað sig vegna morðsins á Khashoggi. Talið var að bin Salman krónprins hefði hætt við að koma fram á ráðstefnunni en þegar hann birtist óvænt þar eru gestir sagðir hafa veitt honum standandi lófaklapp.
Á sama tíma hafði Sky-fréttastöðin eftir heimildarmönnum sínum í Tyrklandi að líkamsleifar Khashoggi hefðu fundist í garði ræðismanns Sáda í Istanbúl. Líkið hefði verið bútað niður og andlitið hafi verið illa leikið.