Ófögnuðurinn trekkir að Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 23. október 2018 07:00 Ég segi eins og Bjartur frændi: Ég er ekki að ná þessu. Nú allt í einu vilja karlar unnvörpum komast inn á lokaða síðu harðsnúinna kvenna og ástæðan er sú að þar er talað svo fjandsamlega um útvalda karlmenn að velsæminu verður um. En maður ætti nú að vera farinn að átta sig þar sem ég kem frá landi hvers fegurð og yndi enginn áttaði sig á uns nokkrir óreiðumenn, hér er stuðst við skilgreiningu ömmu hans Davíðs, höfðu sett hér allt á annan endann og gert okkur að alþjóðlegu olnbogabarni. Þá fannst nú heimsbyggðinni fyrst tilvalið að bregða sér að kíkja á lýðinn og náttúruna sem hann sprettur úr. Þetta á ekki bara við um Ísland. Hér á Spáni vinnur Lýðflokkurinn allar þær kosningar sem efnt er til enda hefur hann rænt lýðinn í áratugi, ausið fjármunum hans í vannærða banka eða á reikninga sína í Sviss, eða notað til að borga munað sinn í svallinu. Það virkar beinlínis aðlaðandi þegar gömlu flokksbófarnir eru leiddir fram fyrir réttvísina, þá fyrst sér fólkið sinn Messías og getur ekki beðið eftir að kjósa hyski hans. Líklega er Trump sá er best kann að lesa í rúnir þessara síðustu og verstu tíma enda lagði hann undir sig latínulýðinn með því að úthúða honum fyrir að spilla öllu og skemma og hóta honum þar á ofan múr miklum sem þeir áttu að borga. Þetta virkar. En sem betur fer var tískan öðruvísi þegar pabbi var ungur annars hefði hann kannski ekki kosið þessa konu sem metur góðmennskuna umfram allt og lætur sér frekar annt um virðingu þeirra sem næst henni standa heldur en frægðarhjóm fyrir einhver endemi. Ég ætla að kjósa hana alltaf. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Jón Sigurður Eyjólfsson Mest lesið Fyrst flúðu þau Reykjavíkurborg… Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Villtur lax eða villt græðgi – sveitin í skotlínu Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun Aðför ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að flóttafólki Hópur stjórnarkvenna í Solaris Skoðun Hanna Katrín og Co, koma til bjargar Björn Ólafsson Skoðun Konur og menntun Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir Skoðun Vladímír Pútín: Hvað er að marka hann? Steinar Björgvinsson Skoðun Vegamál á tímum skattahækkana og vantrausts Benedikt S. Benediktsson Skoðun Þegar innflutningurinn ræður ríkjum Anton Guðmundsson Skoðun Örlög Úkraínu varða frið og öryggi á Íslandi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Flokkur fólksins eða flokkun fólksins? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir Skoðun
Aðför ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að flóttafólki Hópur stjórnarkvenna í Solaris Skoðun
Aðför ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að flóttafólki Hópur stjórnarkvenna í Solaris Skoðun