WOW air hafði undanfarið glímt við fjárhagserfiðleika en þann 18. september síðastliðinn var tilkynnt að félagið hefði lokið við 60 milljóna evra fjármögnun, eða sem samsvaraði um 7,7 milljörðum króna, í skuldabréfaútboði. Greint hafði verið frá því í ágúst að félagið hefði í hyggju að ráðast í útboðið.
Í Fréttablaðinu sagði að WOW air ætlaði sér að sækja fjármagn til þess að treysta starfsemi fyrirtækisins með útgáfu þriggja ára skuldabréfs við evrópska fjárfesta.
Norska verðbréfafyrirtækið Pareto Securities hafði umsjón með útboðinu en WOW air ætlaði að sækja allt að þrettán milljarða króna í útboðinu, eða sem samsvaraði um 100 milljónum evra.

Ýmsar nýjar upplýsingar um fjárhagsstöðu félagsins í fjárfestakynningu
Eins og greint var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2 sama dag og fyrst var sagt frá skuldabréfaútboðinu komu ýmsar nýjar upplýsingar fram um rekstur WOW air í fjárfestakynningu sem félagið lét vinna í tengslum við skuldabréfaútboðið.Þannig kom fram að WOW air hefði tapað 45 milljónum dollara, jafnvirði 4,9 milljarða króna, á tímabilinu frá júlí 2017 til júní 2018. Þá sagði jafnframt í kynningunni að eigið fé flugfélagsins hefði aðeins numið 14 milljónum bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega eins og hálfs milljarðs króna, í lok júní á þessu ári en í árslok 2016 hafði eigið fé fyrirtækisins verið 5,9 milljarðar 2016.
Einnig mátti lesa það út úr fjárfestakynningunni að handbært eigið fé WOW air væri býsna lítið, eða aðeins um sex milljónir dollara í lok júní á þessu ári. Til samanburðar áttið Icelandair Group um 237 milljónir dollara í handbært eigið fé á sama tíma.
Þá var einnig sá munur á rekstri íslensku flugfélaganna tveggja að WOW air leigði allan flugflota félagsins, alls tuttugu Airbus-þotur, en Icelandair á stóran hluta eigin flugflota.

Kaupverðið rúmir tveir milljarðar en ekki 44
Skuldabréfaútboðið var hugsað sem brúarfjármögnun fram að fyrirhuguðu hlutafjárútboði og skráningu WOW air á markað sem fara átti fram innan átján mánaða.Í tengslum við þær fyrirætlanir sagði Skúli Mogensen að hann byggist við að ná um 22 til 33 milljörðum króna ef hann myndi bjóða út helming hlutafjár WOW air. Hann vildi ekki gefa upp hvert hann vonaðist til að heildarvirði fyrirtækisins yrði en ætla mátti að það væri að lágmarki 44 milljarðar króna.
Icelandair Group keypti WOW air hins vegar á rúma tvo milljarða króna sé miðað við 5,4 prósent hlutafjár Icelandair Group sem hluthafar WOW air eignast eftir kaupin. Markaðsvirði Icelandair Group er 38 milljarðar króna. Í lok september síðastliðins var eigið fé Icelandair Group 575 milljónir dollara og handbært fé 175 milljónir dollar.

Þá breyta kaup Icelandair Group á WOW air engu um stöðu þeirra sem tóku þátt í skuldabréfaútboðinu. Það eina sem breytist, verði kaupin samþykkt af öllum hlutaðeigandi, er að nýr eigandi WOW air er fjársterkt fyrirtæki á markaði og eru líkur á vanefndum því litlar sem engar.
Gangi kaupin í gegn verður aftur horfið til þess tíma þegar aðeins eitt íslensk flugfélag var í millilandaflugi. Breytingin sem hefur hins vegar orðið á síðustu árum frá því sem áður var er að fjöldi erlendra flugfélaga flýgur hingað til lands allan ársins hring. Engu að síður eru Icelandair og WOW air með um 80 prósent markaðshlutdeild af flugferðum á Keflavíkurflugvelli.