Herflugvélar skullu saman undan ströndum Japan Samúel Karl Ólason skrifar 6. desember 2018 10:28 Hér má sjá flugvél af gerðinni KC-130 og tvær F/A-18D Hornet orrustuþotur. AP/Landgöngulið Bandaríkjanna
Fimm bandarískra landgönguliða er saknað eftir að tvær herflugvélar skullu saman í Kyrrahafinu undan ströndum Japan í nótt. Tveir menn hafa fundist Embættismenn í Japan segja flugvélarnar hafa lent í sjónum í um 100 kílómetra fjarlægð frá Japan. Önnur flugvélin var orrustuþota af gerðinni F/A-18 Hornet með tvo menn um borð og KC-130 flutningavél með fimm menn um borð.Ekki er vitað hvað olli því að flugvélarnar, sem tilheyra landgönguliði Bandaríkjanna, skullu saman, samkvæmt AP fréttaveitunni, og er atvikið til rannsóknar. Þó er talið að áhafnir flugvélanna hafi verið að æfa eldsneytistöku á flugi.Annar maðurinn sem fannst var úr orrustuþotunni og segja Japanir að hann sé í stöðugu ástandi. Engar upplýsingar eru á kreiki um hinn manninn. Leitaraðilar notast nú við níu flugvélar og þrjú skip við leit að áhöfnum flugvélanna. Nokkuð hefur verið um slys meðal bandarískra hermanna við Japan og nærliggjandi svæðum að undanförnu. Í síðasta mánuði brotlenti F/A-18 Hornet í sjónum við flugmóðurskipið USS Ronald Reagan skömmu eftir flugtak. Þá brotlenti MH-60 Seahawk þyrla við Filippseyjar í október.
Bandaríkin Japan Mest lesið Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Láta bandarískan gísl lausan Erlent Hlýnandi veður og gæti farið í tuttugu stig á morgun Veður Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Innlent Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Erlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Erlent Fleiri fréttir Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Sjá meira