Anna Kolbrún sagði í viðtali í Bítinu í gær, þangað sem hún mætti ásamt formanni Miðflokksins Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, að starfsfólk Alþingis væri hluti af kúltúr á þinginu sem tengja mætti umræðuna á Klaustri við. Hún hefði þó aldrei kynnst eins almennilegu og hjálpsömu starfsfólki.
„Það er þannig að þegar fólk byrjar á nýjum vinnustað þá sogast það inn í kúltúrinn sem fyrir er. Við höfum stundum haldið að þetta séu alþingismenn sem skapa þennan kúltúr,“ sagði Anna Kolbrún. Það væru hins vegar ekki aðeins þingmenn.
„Það er ábyggilega mjög óáþreifanlegt. Það eru allir að vinna vel. Ég get ekki sagt einhverjar persónur eða eitthvað slíkt. En það er alveg klárt mál að við þurfum, ég veit ekki hvort það misskilst ef ég segi að við þurfum að hjálpast að, ég er að tala um stofnunina Alþingi. Starfsmennirnir eru líka mannlegir. Þeir fara líka inn í þennan kúltúr því þeir eru líka mannlegir,“ sagði Anna Kolbrún.
Bætti hún við að hún hefði aldrei kynnst jafn almennilegum og hjálpsömum starfsmönnum og þeim á skrifstofu Alþingis. Þetta væri eitthvað óáþreifanlegt í kúltúr Alþingis.
Sigmundur Davíð hefur sagt ummæli þingmannanna á Klaustri alls ekkert einsdæmi. Hann hafi margoft heyrt alþingismenn tala illa um náungann og sjálfur hafi hann þurft að ganga út ásamt eiginkonu sinni.
Þingmönnum virðist upp til hópa blöskra þessi orðræða Miðflokksmanna um kúltúrinn á Alþingi. Hætti Guðmundur Ingi Kristinsson, varaformaður Flokks fólksins, við ræðu sína um öryrkja á þinginu í gær til þess að fara hörðum orðum um ummæli Sigmundar Davíðs. Jón Steindór virðist sama sinnis um orð Önnu Kolbrúnar í Bítinu.

„Ég held að varla finnist betri hópur af samviskusömu, kláru og hjálpsömu fólki sem gætir þess í hvívetna að vega hvorki að virðingu þings né þingmanna,“ segir Jón Steindór.
„Ég hef ekkert nema gott um starfsfólk þingsins að segja. Ég veit að þau eru öll að gera sitt besta og gera það svo sannarlega vel. Það eru örfá atriði sem mega betur fara en það er þá stjórnmálunum að kenna, ekki starfsfólki þingsins,“ segir Björn Leví.
Andrés Ingi Jónsson, þingmaður VG, er sama sinnis.
„Ég einmitt dáist daglega að því hvað starfsfólkið á endalausa þolinmæði til að umbera stressið og vitleysuna sem er stundum í kringum okkur.“
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, fyrrverandi þingkona Samfylkingarinnar, þakkar Jóni Steindóri fyrir að vekja athygli á þessu.
„Aðdróttanirnar að starfsfólki Alþingis eru forkastanlegar. Starfsfólk Alþingis er einstaklega faglegt og þjónustar þingmenn, hvar í flokki sem þeir standa, af miklum metnaði og virðingu.“
Fréttin var uppfærð klukkan 10:22 með nánari ummælum Önnu Kolbrúnar úr Bítinu.