Ágúst Ólafur sendi frá sér yfirlýsingu á föstudagskvöld þar sem hann greindi frá því að hann væri farinn í tveggja mánaða leyfi frá þingstörfum. Ástæðan væri sú að hann hefði fengið áminningu frá trúnaðarnefnd flokksins vegna samskipta við konu í upphafi sumars. Umrædd kona er Bára Huld sem í dag sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hún greinir í ítarlegu máli frá sinni upplifun af áreitni Ágústs.
Sjá einnig: Bára Huld segir Ágúst gera minna úr atvikinu en efni standa til
Mál Ágústs hefur verið borið saman við framgöngu Klaustursþingmannanna sex sem staðnir voru að því að úthúða konum, hinsegin fólki og fötluðum yfir ölglasi í lok nóvember. Kallað hefur verið eftir afsögn þingmannanna úr ýmsum áttum, til að mynda af Ungum Jafnaðarmönnum. „Traust ungs fólks og almennings til Alþingis er þegar orðið rýrt, einmitt vegna þess að mál sem þetta hafa hingað til verið tekin vettlingatökum og þingmenn ekki látnir axla ábyrgð á gjörðum sínum,“ sagði meðal annars í yfirlýsingu UJ sem send var út tveimur dögum eftir að fyrstu fréttir bárust af Klaustursmálinu.
Fátt sé í hendi á þessari stundu, málið sé einfaldlega til umræðu í UJ og ekki liggi fyrir hvenær von sé á afstöðu hreyfingarinnar. Málið sé þó litið grafalvarlegum augum.

„En hann tók líka skref lengra en trúnaðarnefndin krafðist og hann segist vera að vinna í sínum málum. Hvað tekur við af hans hálfu mun svo ekki liggja fyrir en í febrúar,“ segir Nikólína og vísar til þess að þá lýkur leyfinu sem Ágúst Ólafur tók sér vegna málsins. Nikólina vill þó ekki segja af eða á með afsagnarkröfu af hennar hálfu. Hún sé enn að melta nýjustu vendingar í málinu.
Nikólína þakkar trúnaðarnefnd Samfylkingarinnar, sem hafði áreitnismálið til meðferðar, fyrir vel unnin störf og segist hún ánægð með þá verkferla sem stuðst var við í ferlinu. Þetta sé erfitt og fordæmalaust mál.
„Það hefur aldrei komið fyrir að gerandi í máli sem þessu stigur fram á undan þolanda. Þetta er skelfilegt mál og ég finn rosalega til með þolanda, ekki síst eftir að hún deildi sinni yfirlýsingu sem setti hlutina í ákveðið ljós,“ segir Nikólína.