Spánverjar unnu öruggan sigur á Makedóníu á HM í handbolta í dag. Með sigrinum settu Spánverjar upp tvo úrslitaleiki, á milli sín og Króata um toppsæti riðilsins og á milli Íslands og Makedóníu um sæti í milliriðlum.
Evrópumeistarar Spánverja byrjuðu alls ekki sannfærandi og var staðan 6-3 fyrir Makedóníu þegar 13 mínútur voru liðnar af leiknum. Þá vöknuðu Spánverjar aðeins til lífsins og jöfnuðu leikinn. Það var svo jafnt út hálfleikinn, staðan 12-13 fyrir Spánverja í hálfleik.
Spánverjar byrjuðu seinni hálfleikinn hins vegar af krafti og skoruðu fyrstu fimm mörk hans og komust í 12-18. Eftir það sáu Makedóníumenn aldrei til sólar.
Þegar upp var staðið munaði ellefu mörkum á liðunum og 21-32 sigur Spánar staðreynd.
Staðan í riðlinum er þá þannig að Spánn og Króatía eru með fullt hús og spila um fyrsta sætið á morgun. Ísland og Makedónía eru með fjögur stig hvor en Ísland er með betri markatölu og er því í þriðja sætinu, síðasta sætinu sem gefur sæti í milliriðli. Jafntefli í leik liðanna á morgun dugar því Íslendingum til að komast áfram.
Í D-riðli urðu nokkuð óvæntar tölur þegar Svíþjóð vann Katar því silfurliðið frá EM rétt marði eins marks sigur á Katar.
Eftir að Svíar höfðu leitt nær allan fyrri hálfleikinn voru það Katarar sem fóru með 11-10 forystu inn í hálfleik. Þeir mættu svo af krafti út í seinni hálfleikinn og komust í þriggja marka forystu áður en langt um leið.
Katar hélt forystu sinni þar til á 46. mínútu þegar Mattias Zachrisson kom Svíum aftur yfir. Svíar létu forystuna ekki aftur úr höndum sér en lokatölur urðu 22-23.
Þegar aðeins ein umferð er eftir af riðlakeppninni á HM er staðan svona:
A riðill
Frakkland, 7 stig
Þýskaland, 6 stig
Rússland, 4 stig
Brasilía, 4 stig
Serbía, 3 stig
Kórea, 0 stig
B riðill
Króatía, 8 stig
Spánn, 8 stig
Ísland, 4 stig
Makedónía, 4 stig
Japan, 0 stig
Barein, 0 stig
C riðill
Noregur, 8 stig
Danmörk, 8 stig
Túnis, 4 stig
Austurríki, 2 stig
Síle, 2 stig
Sádi Arabía, 0 stig
D riðill
Svíþjóð, 8 stig
Ungverjaland, 6 stig
Egyptaland, 3 stig
Argentína, 3 stig
Katar, 2 stig
Angóla, 2 stig
