Þingmaður Pírata segist hafa fengið nóg af „viðvarandi meðvirkni með ofbeldisseggjum á Alþingi“ og því ákveðið að stilla sér upp með „Fokk ofbeldi“-húfu á höfðinu, við hlið Bergþórs Ólasonar, þingmanns Miðflokksins, þar sem hann stóð í ræðupúlti þingsins í gær.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir rökstyður gjörninginn, þöglu mótmælin, í færslu á Facebook-síðu sinni í kvöld. Samflokksmaður hennar, Björn Leví Gunnarsson, deilir færslunni, en hann stillti sér einnig upp á sama tíma með eins húfu hinu megin ræðupúltsins.
Í færslunni segir Þórhildur Sunna að störf umhverfis- og samgöngunefndar, þar sem Bergþór gegnir formennsku, hafi verið í uppnámi vegna „afstöðuleysis meirihlutans“ gagnvart formennsku Bergþórs. Skýtur hún sérstaklega á þingmenn Vinstri grænna, sem „að eigin sögn [hafi] femínisma sem eina af sínum grunnstoðum“.
Umhverfis- og samgöngunefnd er ein þriggja fastanefnda þar sem fulltrúar stjórnarandstöðu gegna formennsku. Bergþór hefur sætt mikilli gagnrýni vegna Klausturmálsins svokallaða, en hann sneri nýlega aftur á þing eftir að hafa tekið sér ótímabundið launalaust leyfi.

Stjórnarandstöðunni refsað vegna gjörða Miðflokksmanna
Þórhildur Sunna segir að stjórnarmeirihlutinn hafi ekki þorað að taka afstöðu í málinu þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir minnihlutans til þess að finna ásættanlega lausn varðandi formennsku í nefndinni. „Nú hefur meirihlutinn tekið ákvörðun um að hirða eitt þriggja formannembætta minnihlutans af honum til sín, í hendur skuggasamgöngumálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, Jóns Gunnarssonar. Hér er verið að refsa stjórnarandstöðunni fyrir gjörðir Miðflokksmanna,“ segir Sunna.
Sjá einnig: Bryndís skammaði Björn Leví og Þórhildi Sunnu vegna mótmæla þeirra
Hún fer einnig hörðum orðum um Brynjar Níelsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, sem hún segir hafa fengið að „spúa kvenfyrirlitningartali“ án viðnáms frá stjórnarmeirihlutanum. „Katrín Jakobsdóttir, jafnréttismálaráðherra, samþykkir með þögn sinni að það sé í lagi að Brynjar Níelsson væni konurnar sem hafa sakað Jón Baldvin Hannibalsson um kynferðisbrot, um opinbera smánun. Að þær vilji bara meiða hann. Að þær fari offorsi. Brynjar smættar brotin gegn þessum hugrökku konum, gerir lítið úr þeim með þöglu samþykki stjórnarmeirihlutans,“ segir Þórhildur Sunna.

Áfram heldur þingmaðurinn. „Nú er komið í ljós að næstbesta staðan fyrir Miðflokkinn var valin af [stjórnarmeirihlutanum] sem ákveður að refsa okkur í stjórnarandstöðunni með því að setja sinn mann í formannstól nefndarinnar. Meirihlutinn notfærir sér óþol okkar fyrir Bergþóri [Ólasyni] í formannsstóli með því að taka til sín stólinn og setur þangað Jón Gunnarsson, skuggasamgöngumálaráðherra Íslands.
Þannig græðir stjórnarmeirihlutinn á Klaustursmálinu. Þeim finnst líka ekkert mál að Bergþór sitji áfram í stjórn nefndarinnar og geti þannig stýrt fundum nefndarinnar forfallist Jón eða Ari Trausti.
Ekkert mál.
Mér ofbauð og við Björn gripum til okkar ráða. Lái okkur hver sem vill,“ segir þingmaðurinn að lokum.
Sjá má færsluna í heild sinni að neðan.