Ákvörðun Lilju um Víkurgarð á mánudag [email protected] skrifar 16. febrúar 2019 08:00 Framkvæmdir hafa legið niðri frá því að skyndifriðun austurhluta Víkurgarðs tók gildi þann 8. janúar síðastliðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Fornminjanefnd telur að markmiðum um vernd minjasvæðis í Víkurgarði verði síður náð með stækkun friðlýsingarsvæðis garðsins eins og tillaga Minjastofnunar gerir ráð fyrir. Þetta kemur fram í bókun nefndarinnar frá 31. janúar síðastliðnum. Eitt af hlutverkum nefndarinnar er að fjalla um tillögur Minjastofnunar að friðlýsingum áður en þær eru sendar ráðherra. Ákvörðun Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra vegna skyndifriðunar Víkurgarðs þarf að liggja fyrir næstkomandi mánudag. Málið hefur verið til umfjöllunar í ráðuneytinu en Minjastofnun ákvað þann 8. janúar síðastliðinn að skyndifriða þann hluta garðsins sem er innan þess reits sem félagið Lindarvatn áformar að reisa hótel á. Sá hluti Víkurgarðs sem í daglegu tali nefnist Fógetagarður er þegar friðlýstur. Minjastofnun taldi hins vegar nauðsynlegt að stækka friðlýsingarsvæðið um átta metra í austur. Var vísað til þess að ekki hefði náðst ásættanleg niðurstaða um inngang fyrirhugaðs hótels. Þannig yrði Víkurgarður nýttur sem aðkomusvæði hótelsins sem væri algerlega óásættanlegt. Í fyrrnefndri bókun fornminjanefndar segir að áform framkvæmdaaðila um inngang að hótelinu hafi ekki í för með sér umráðarétt yfir næsta nágrenni, heldur þurfi þeir að lúta þeim skilyrðum sem Minjastofnun setji. Þá er brýnt fyrir Minjastofnun, Reykjavíkurborg og framkvæmdaaðilum að ná samkomulagi sem komi til móts við sjónarmið allra aðila þó þannig að vernd minjasvæðisins verði í öndvegi. Töluverðar deilur hafa staðið um fyrirhugaða hótelbyggingu og hafa heiðursborgarar Reykjavíkur meðal annars mótmælt framkvæmdunum. Í dag stendur félagsskapurinn Verndum Víkurgarð fyrir baráttuskemmtun í Iðnó sem hefst kl. 14. Í yfirlýsingu sem meðal annars var birt í Fréttablaðinu í gær skorar fjöldi nafntogaðra einstaklinga á Lilju Alfreðsdóttur að friðlýsa austurhluta Víkurgarðs en þar með yrði allur garðurinn, eins og mörk hans voru árið 1838, friðlýstur.
Reykjavík Skipulag Víkurgarður Mest lesið „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent Borgarstjóra falið að beita sér fyrir því að einkaflug á Reykjavíkurflugvelli fari annað Innlent „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Innlent Engin virkni á gossprungunni en glóð logar í hrauninu Innlent Talaði í 25 tíma og sló Bandaríkjamet Erlent Val Kilmer er látinn Lífið Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Innlent Telja fórnarlömb raðnauðgarans Zou vera á sjöunda tug Erlent Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent Réðust á og hótuðu starfsmönnum verslunar Innlent Fleiri fréttir Samfylkingin mælist með 27 prósenta fylgi Réðust á og hótuðu starfsmönnum verslunar Engin virkni á gossprungunni en glóð logar í hrauninu Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Borgarstjóra falið að beita sér fyrir því að einkaflug á Reykjavíkurflugvelli fari annað Sækja um leyfi fyrir Kvíslatunguvirkjun Annasamur sólarhringur hjá björgunarsveit Patreksfjarðar Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Hafnar ásökunum um byssuat og uppgefnir íbúar undir Steinafjalli „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Fordæmir atvikið í Grindavík Fara fram á að Mangione fái dauðarefsinguna Ekið á gangandi vegfaranda Beindi byssunni yfir höfuð björgunarsveitarmanns Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ „Þessi staður er ákaflega óheppilegur“ Beita öllum brögðum til að minnka tjón ef hraunið nær bænum Grindvíkingur ógnaði björgunarsveitarfólki með skotvopni „Minni kraftur í þessu samanborið við fyrri gos“ Myndir: Eldgos ógnar Grindavík Snýst allt um að tryggja öryggi fólks Gos við bæjarmörkin: Aukafréttatími í hádeginu Ein af dekkstu sviðsmyndunum að raungerast Björgunarsveitarfólki ógnað við rýmingu Eldgosið séð úr lofti Vonast til að hefja störf í Grindavík strax á morgun Sterkari merki en fyrir síðustu eldgos Sjá meira
Borgarstjóra falið að beita sér fyrir því að einkaflug á Reykjavíkurflugvelli fari annað Innlent
Borgarstjóra falið að beita sér fyrir því að einkaflug á Reykjavíkurflugvelli fari annað Innlent