„Í gær átti sér stað nokkurs konar gíslataka á ræðustól Alþingis. Níu manna þingflokkur hélt árshátíð sína þarna í ræðustólnum með því að yfirtaka hann og sýna þingheimi fram á að nú sé flokkurinn aldeilis búinn að ná vopnum sínum. Sem eru ræðuhöld. Stóð gleðin til að verða hálfsex um morguninn.“
Sigmundur einn manna skilur málið
Þannig hefst pistill Guðmundar Andra en hann vitnar í Pál Vídalín sem orti um alræmdan valdadrykkjurút: „Þú hefnir þess í héraði sem hallaðist á Alþingi.“
„Sigmundur Davíð Gunnlaugsson situr í Efnahags- og viðskiptanefnd og hann var ekki mættur þegar málið sem til umræðu er var afgreitt. Hann skilaði ekki heldur séráliti. Hann er hins vegar reiðubúinn að setja þingstörfin í uppnám til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri, enda búinn að sjá þetta allt út, einn manna.“
„Fríkin fríka út“
Guðmundur Andri segir þetta ekki snúast um skýra valkosti, eins og stundum hefur verið þegar upp hefst málþóf: „Þetta er eitthvað annað: virðist snúast um einhvers konar hópefli fólks sem glatað hefur virðingu annarra og ætlar að hrifsa hana til sín aftur með ofríki.“Fjölmargir hafa orðið til að vitna í pistil Guðmundar Andra. Annar pistill, sem Karl Th. Birgisson ritar á vef sinn Herðubreið, hefur einnig vakið athygli í þessu samhengi. Karl hefur hina mestu skömm á framgöngu Miðflokksmanna og það hefur Illugi Jökulsson rithöfundur einnig sem tengir við pistil Karls á sinni Facebook-síðu og fylgir honum úr hlaði með orðunum:

Ógæfa yfir íslenskum stjórnmálum
Páll Valsson útgefandi er hjartanlega sammála þeim Guðmundi Andra, Karli Th. og Illuga: „Miðflokkurinn hrynur í fylgi, maklega bak Klausturmálum, en stóreflist þá að þingstyrk, og er nú lagstur í málþóf og talar um Icesave - hvaða jörmunógæfa hvílir yfir íslenskum stjórnmálum?“Kolbeinn Óttarsson Proppé, er einn fárra þingmanna sem sat yfir allri umræðunni og greinir hann frá því á Facebooksíðu sinni: „Næturfundi lokið, nú held ég heim. Þingfundi lauk fyrir skömmu, klukkan 5.21. Ég hlustaði á margar ræður frá fólki sem er allt í sama flokknum. Það hafði miklar skoðanir á vilja og innræti annarra þingmanna, en engar efasemdir um eigið ágæti. Vissulega lærdómsríkt.“
Björn Ingi útskýrir málið að hætti hússins
En, þó þeir séu talsvert fleiri sem eru til í að fordæma framgöngu Miðflokksmanna á þingi í nótt, þá eiga þeir hauk í horni sem er Björn Ingi Hrafnsson ritstjóri. Hann fer yfir málin á sinni Facebook-síðu og með leyfi fundarstjóra, þá hlýtur þetta að teljast skilmerkileg yfirferð:
1. Flokkurinn er á móti málinu, Sigmundur Davíð hefur margoft lýst því að hann telji með því gefið eftir gagnvart vogunarsjóðum.
2. Þetta er kjörið tækifæri fyrir flokkinn til að þétta raðirnar og sýna samstöðu.
3. Með þessu sýnir hann að svo stór þingflokkur er fullfær um að vera einn í stjórnarandstöðu ef þarf.
4. Þetta markar ákveðna stöðu gagnvart stjórnarflokkunum og hinum stjórnarandstöðuflokkunum.
Skilaboðin eru þau, að ekkert samkomulag er um þingstörf ef Miðflokkurinn er virtur að vettugi.
Þannig skil ég þetta að minnsta kosti.“