Málið var afar umdeilt og klofnuðu þingmenn Sjálfstæðisflokksins í afstöðu sinni til þess. Þannig greiddi Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, atkvæði gegn frumvarpinu.
Þingpallarnarnir voru fullir þar sem fjölmenni fylgdist með atkvæðagreiðslunni og brutust út fagnaðarlæti þegar það lá ljóst fyrir að frumvarpið hafði verið samþykkt.
Tillaga Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, um að taka frumvarp um þungunarrof af dagskrá þingsins var í upphafi þingfundar felld með 44 atkvæðum gegn 16. Hann sagði fulla ástæðu til að fresta málinu til að ná breiðari sátt um málið.
Kosið var um breytingartillögu Páls Magnússonar um að breyta heimilaðri tímalengd til þungunarrofs úr 22 vikum í 20 vikur og var sú tillaga felld með 44 atkvæðum.
„Þótt að ég telji að þessi breytingatillaga sé gerð af góðum hug þá skoðuðum við þetta mjög vel í vinnu velferðarnefndar og þetta myndi fela í sér að takmarka núverandi rétt konu til að fara í þungunarrof og ef við erum að taka undanþágur úr lögunum en halda okkur við 20 vikur þá værum við að takmarka núverandi rétt kvenna til þungunarrofs þannig að ég get ekki stutt þessa breytingatillögu,“ sagði Halldóra Björt Mogensen, formaður velferðarnefndar, í skýringu með atkvæði sínu.

Allir þingmenn Framsóknarflokks, Pírata, Samfylkingar, Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Viðreisnar greiddu atkvæði með frumvarpinu. Lilja Alfreðsdóttir, menntamálaráðherra, var fjarverandi en hún sat hjá í 2. umferð umræðna. Varamaður hennar Alex B. Stefánsson greiddi atkvæði með frumvarpinu. Allir þingmenn Miðflokks og Flokks fólksins greiddu atkvæði gegn frumvarpinu en Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokks, sat hjá.
Atkvæði Sjálfstæðisflokks klofin
Atkvæði þingmanna Sjálfstæðisflokksins voru klofin en fjórir þingmenn þeirra greiddu atkvæði með frumvarpinu og átta gegn því. Tveir sátu hjá. Þeir þingmenn Sjálfstæðisflokks sem greiddu atkvæði með frumvarpinu voru Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson og Kristján Þór Júlíusson. Þeir þingmenn Sjálfstæðisflokks sem greiddu atkvæði gegn frumvarpinu voru Ásmundur Friðriksson, Birgir Ármannsson, Bjarni Benediktsson, Brynjar Níelsson, Haraldur Benediktsson, Jón Gunnarsson, Njáll Trausti Friðbertsson, Óli Björn Kárason, Páll Magnússon og Sigríður Á. Anderssen. Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins voru fjarverandi, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir og Vilhjálmur Árnason.
Hægt er að skoða nánar hvernig atkvæði féllu hér.
Fréttin hefur verið uppfærð.