Arnór Þór Gunnarsson fór á kostum í liði Bergischer sem hafði betur gegn Minden í næst síðustu umferð þýsku Bundesligunnar í handbolta.
Arnór var langmarkahæstur í liði Bergischer með 12 mörk í 35-32 sigrinum. Gestirnir í Bergischer höfðu verið 15-20 yfir í hálfleik.
Auk þess átti Arnór þrjár stoðsendingar á liðsfélaga sína.
Guðjón Valur Sigurðsson var á meðal markahæstu manna í liði Rhein-Neckar Löwen sem tapaði fyrir Die Eulen Ludwigshafen 26-29.
Guðjón skoraði fimm mörk líkt og Patrick Groetzki.
Lærisveinar Aðalsteins Eyjólfssonar í Erlangen töpuðu með einu marki, 24-25, fyrir Melsungen.
