Heimagerð kynlífsleikföng geta þó hljómað frekar kæruleysisleg hugmynd við fyrstu hugsun og auðvelt að fá upp mynd í hausinn þar sem hlutirnir fara vandræðalega mikið úrskeiðis.
Í nýrri grein frá Cosmopolitan fer kynlífsfræðingurinn Stephanie Alys yfir nokkra hluti sem má finna á flestum heimilum og er auðveldlega hægt að nota þegar fólki langar að leika.

Fjaðrir
Kitlaðu og snertu bólfélagann þinn með mjúkri og fíngerðri áferð fjaðrarinnar. Notkun fjaðra í kynlífi er frábær leið til að byggja upp eftirvæntingu og spennu. Ef þú dregur fjöðrina rólega eftir líkamanum örvast taugaendar og öll skynjun verður meiri. Bólfélaginn fer að þrá meiri og meiri snertingu. Strjúktu innanverð læri, háls og geirvörtur.
Ísmolar
Leikur með kulda og hita getur verið mjög skemmtileg leið til að upplifa nýja skynjun í kynlífi og auka næmni. Notaðu ísmolann til að sleikja varlega yfir líkama bólfélaga þíns, færðu ísmolann rólega með tungunni yfir geirvörtur og upp með innanverðum lærunum.Fyrir munnmök er gott að sjúga ísmolann til að kæla munninn vel. Taka svo ísmolann út áður en þú byrjar. Munið að skiptast á.
Bindi
Bindi er hægt að nota til að binda fyrir augun á bólfélaganum. Þegar þú lokar fyrir þá skynjun að sjá, eykur það náttúrulega aðra skynjun og þú verður viðkvæmari fyrir snertingu og atlotum.
Sturtuhausinn
Þetta gæti hljómað eins og klisja en að nota sturtuhaus við sjálfsfróun kvenna er í raun mjög vinsæl aðferð og telst frekar örugg.Þú ert nakin, blaut, afslöppuð og hefur nægan tíma fyrir sjálfa þig.
Taktu sturtuhausinn og leggðu hann að snípnum og börmunum. Leiktu þér með hitastillingar og ef þú ert með sturtuhaus með stillingum fyrir styrkleika þá er akkurat tíminn til að prófa þær allar. Ef þú átt vatnsheldan titrara er tilvalið að nota hann með. Tvöföld ánægja.

Klútur
Klútinn góða er hægt að nota á ýmsa vegu, ekki bara um hálsinn. Spurðu bólfélaga þinn um að binda úlnliðina þína saman við rúmgaflinn og prófaðu þig áfram með hlutverkaleik eða valdaleik.Með bæði hendur og fætur bundnar þá ertu algjörlega búin að gefa þig á vald bólfélaga þíns en mikilvægt er að það sé mikið traust á milli aðila. Hafðu mörkin þín skýr og vertu viss um að virða mörk hins aðilans.

Spaði
Spaða er hægt að finna á hverju heimili og vegna lags hans er hann mjög hentugur sem flengingartól. Það eru alls ekki allir sem hafa áhuga eða hafa prófað flengingar en fyrir þá sem vilja prófa þá er fínt að byrja með spaðanum úr eldhúsinu.Einfaldlega leggstu í kjöltu bólfélaga þíns og búðu þig undir fullnægjandi tilfinningu flengingar. Aftur er mikilvægt að tala um mörk og algjört skilyrði að traust sé á milli fólks.

Matur
Það gætu jafnvel leynst hlutir í eldhússkúffum eða ískápnum sem hægt er að prófa sig áfram með í kynlífnu.Hunang, þeyttur rjómi og brætt súkkulaði er eitthvað til að byrja á. Leikurinn gæti orðið svolítið subbulegur en hafðu það í huga að við þetta þá ertu að örva öll fimm skynfærin þín í einu.
Mundu að ekki er æskilegt að matur komi nálægt kynfærum heldur er besta að halda sig við magann, varir, háls, geirvörtur og jafnvel tær.
Verði þér að góðu!
