Tekin voru um 600 sýni af kjöti af sauðfé, nautgripum, svínum og kjúklingum, af innlendum eða erlendum uppruna. Skimað var fyrir salmonellu, kampýlóbakter ásamt shigatoxinmyndandi E.coli, en um er að ræða afbrigði E.coli sem getur myndað eiturefnið shigatoxín.

Dóra S. Gunnarsdóttir, forstöðumaður neytendaverndar hjá MAST, segir þetta tiltölulega háa tíðni, einkum í lamba- og kindakjöti. Ástæða sé til að vakta stöðuna.
„Við höldum áfram í ár að fá upplýsingar um stöðuna, við metum það svo í lok árs hvort við höldum áfram eða hvort við ættum að bíða í einhvern tíma og sjá hvort það verði einhver breyting,“ segir Dóra. „Við vitum ekkert hvernig þetta hefur verið. Það getur verið að þetta hafi verið svona lengi.“
Góðu fréttirnar eru að salmonella og kampýlóbakter greindust ekki í þeim sýnum af kjúklingakjöti sem tekin voru á markaði 2018. Salmonella greindist í einu sýni af svínakjöti sem var af erlendum uppruna.
Telur MAST það benda til þess að forvarnir og eftirlit skili árangri í eldi og við slátrun alifugla og svína.

„Þetta sýnir bara það að þetta er ekki eins og umræðan hefur verið um íslenska framleiðslu samanborið við þá erlendu. Sjúkdómsvaldandi bakteríur og sýklalyfjaónæmar bakteríur finnast líka í íslensku kjöti. Við erum ekki bara að tala um útlensk matvæli,“ segir Þórólfur.
Shigatoxínmyndandi E.coli-bakteríur geta valdið sjúkdómum, segir Þórólfur, en að það séu þó mjög sjaldgæfir sjúkdómar með fáum tilfellum á ári.
„Þessar bakteríur geta valdið sýkingum og það er sláandi að svona mikið af þessum bakteríum skuli finnast í íslensku lambakjöti og jafnvel nautakjöti. Þrjátíu prósent af lambakjöti og ellefu prósent af nautakjöti, þetta er mikill fjöldi.“
Fram kemur í skýrslu MAST að bakteríurnar dreifast um allt kjötið þegar það er hakkað. Því sé mikilvægt að forðast krosssmit við matreiðslu og gegnumsteikja hamborgara og annað hakkað kjöt. Þórólfur segir að þetta þýði ekki að fólk eigi að forðast blóðugar steikur.
„Þessar bakteríur eru yfirleitt á yfirborðinu, bæði á nauta- og lambakjöti. Það er ekki gott að borða kjötið hrátt en það ætti að vera í lagi að elda steikina medium rare.“