Fresta gæti þurft geimskoti evrópsks Marsleiðangurs eftir að fallhlíf lendingarjeppans brást við tilraunir í Svíþjóð á dögunum. Innan við ár er þar til skjóta á geimfarinu á loft en þetta er í annað skipti sem galli kemur í ljós í fallhlífinni.
Exomars-leiðangur evrópsku og rússnesku geimferðastofnananna á að hefjast í júlí á næsta ári. Frumgerð af geimfarinu brotlenti í Kiruna í Norður-Svíþjóð þegar verið var að prófa fallhlífina sem á að svífa með það mjúklega niður á yfirborð Mars í síðustu viku.
Farinu var sleppt úr helíumloftbelg í um 29 kílómetra hæð en skall á jörðinni á miklum hraða. Breska ríkisútvarpið BBC segir að bráðabirgðarannsókn bendi til þess að allt hafi gengið vel fyrst þegar tvær aðalfallhlífarnar voru opnaðar. Rifur hafi greinst í hlífinni áður en hún þandist út.
Sams konar rifur greindust við fyrri tilraunir með fallhlífina í Svíþjóð í lok maí. Breytingar voru þá gerðar á hönnun hennar en þær virðast ekki hafa komist fyrir gallann. Takist verkfræðingum ekki að ráða bót á vandamálinu fyrir næstu tilraun gæti þurft að fresta geimskotinu.
Exomars er leiðangur í tveimur hlutum. Rússar ætla að senda lendingarfar og Evrópumenn könnunarjeppann Rosalindu Franklin. Jeppinn á að safna jarðvegssýnum og leita að lífrænum efnasamböndum í honum.
Nico Dettmann, hópstjóri mannaðra og vélmennaleiðangraþróunar hjá evrópsku geimstofnuninni ESA, segist vongóður um að gallinn verði lagaður og að tímaáætlunin standist. Lendingin verði æfð aftur í tilraunum í nóvember og febrúar. Gangi allt að óskum þá verð enn hægt að hefja ferðina í júlí.
„Ef önnur þeirra klikkar tökum við ekki áhættuna. Árangur leiðangursins er fyrir öllu,“ segir hann.
