Kolbeinn og félagar í erfiðri stöðu eftir tveggja marka tap á Celtic Park Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. ágúst 2019 20:30 Kolbeinn í leik með AIK. vísir/getty Kolbeinn Sigþórsson var í byrjunarliði AIK sem tapaði fyrir Celtic, 2-0, í Glasgow í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í kvöld. Staðan í hálfleik var markalaus en á 48. mínútu kom James Forrest Celtic yfir. Kolbeinn var tekinn af velli á 72. mínútu. Aðeins mínútu síðar skoraði Odsonne Edouard annað mark skosku meistaranna. Fleiri urðu mörkin ekki og Celtic fagnaði góðum sigri. Seinni leikur liðanna fer fram í Svíþjóð eftir viku. Kolbeinn átti ágætan leik í framlínu AIK en fékk ekki mikla hjálp. Hann hefur skorað þrjú mörk í 15 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu. Evrópudeild UEFA
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Íslenski boltinn
Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 103-74 | Andlegt gjaldþrot gestanna í stjörnuleik Ægis Körfubolti
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Íslenski boltinn
Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 103-74 | Andlegt gjaldþrot gestanna í stjörnuleik Ægis Körfubolti