Ljósmyndasýningin er í tilefni af 20 ára afmæli Krafts en á myndunum er raunveruleiki nokkurra ungmenna sem hafa greinst með krabbamein fangaður. Á myndunum sýna þau örin sín eða bert, hárlaust höfuðið sem oft fylgir krabbameinsmeðferð. Ljósmyndarinn Kári Sverrisson tók myndirnar og hafði frumkvæði að sýningunni.
„Ég greindist fyrst í ágúst 2017, þá greindist ég með Hopkins, eitlafrumukrabbamein og fór þá í meðferð í sex mánuði. [Þá] átti ég að vera laus en því miður kom það aftur upp núna í janúar. Ég er í meðferð við því eins og stendur við því, þannig vonandi tekst það á endanum,“ segir Sara Snorradóttir, fyrirsæta í sýningunni.
Sara missti hárið alveg í seinni meðferðinni sinni og hún segir það hafa verið virkilega erfitt. Hárið hafi verið stór partur af sjálfsmynd hennar og hún hafi ekki vitað hvernig hún ætti að takast á við hármissinn.
Hún fór aldrei út úr húsi án þess að vera annað hvort með hárkollu eða húfu. Auk þess gekk hún um með húfu heima hjá sér, henni var kalt og þótti óþægilegt að sjá sjálfa sig í speglinum.

Hún vildi bara fá að vera hún sjálf, gamla Sara, en ekki Sara með krabbameinsstimpil á enninu sem allir finndu sig knúna til að vorkenna. „Þú situr kannski heima og ert að hugsa um þetta allan daginn. Svo hefurðu þig út og gerir eitthvað skemmtilegt en þá vilja allir tala um þetta við þig. Þá viltu kannski frekar fá að vera bara „ég“ og hafa gaman,“ segir Sara.
Hún vill að fólk horfi á sýninguna og sjái að þetta fólk, sem hefur svona „svakalega sögu“, sem manneskjur. „Ég er bara ég og þau eru bara þau.“

„Það er það sem við hjá Krafti höfum mikið verið að standa fyrir er að tala opinskátt um veikindin, um hlutina eins og þeir eru og að við getum komið til dyranna eins og við erum klædd. Við eigum ekki að þurfa að fela örin okkar eða að við séum sköllótt eða með einn fót út af því að þetta er vitnisburður um okkar sigra og í rauninni að við séum á lífi,“ segir Hulda.