Sundmannakláði í Landmannalaugum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 2. október 2019 16:28 Frá Landmannalaugum. Umhverfisstofnun
Umhverfisstofnun hefur fengið tilkynningar um að þeir sem notað hafa náttúrulaugarnar í Landmannalaugum hafi fengið útbrot vegna sundmannakláða. Frá þessu er greint í færslu á Facebook-síðu Umhverfisstofnunar þar sem segir að um sé að ræða sundlirfur fuglablóðagða sem valda útbrotum þegar farið er ofan í vatn þar sem lirfurnar eru til staðar. „Kláðabólur myndast þegar ofnæmiskerfi líkamans hefur tekist að stöðva lirfurnar. Sýni menn ekki ofnæmisviðbrögð hefur lirfunni tekist að komast óáreittri inn í líkamann, en þar drepst hún fljótlega. Blóðögðurnar finnast í andfuglum eins og stokkönd og duggönd sem eiga til að dvelja á svæðinu í Landmannalaugum,“ segir í tilkynningu Umhverfisstofnunar. Stofnunin hafði samráð við sóttvarnalækni og byggist niðurstaða á greiningum frá Tilraunastöðinni á Keldum. Þá vinnur Umhverfisstofnun nú að því í samráði við fagaðila að koma í veg fyrir að sundmannakláði berist áfram í náttúrulaugina í Landmannalaugum. Ekki hefur tekist að koma í veg fyrir það á þessu ári og þurfa baðgestir því að hafa það í huga að enn er möguleiki á að smitast af sundmannakláða.Nánari upplýsingar um sundmannakláða má nálgast á vef Tilraunastöðvarinnar á Keldum.
Ferðamennska á Íslandi Heilbrigðismál Rangárþing ytra Mest lesið „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Innlent Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Innlent „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Innlent Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Innlent Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum Innlent Val Kilmer er látinn Erlent „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Innlent Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ Innlent Fleiri fréttir Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Sækja um leyfi fyrir Kvíslatunguvirkjun Annasamur sólarhringur hjá björgunarsveit Patreksfjarðar Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Hafnar ásökunum um byssuat og uppgefnir íbúar undir Steinafjalli „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Fordæmir atvikið í Grindavík Fara fram á að Mangione fái dauðarefsinguna Ekið á gangandi vegfaranda Beindi byssunni yfir höfuð björgunarsveitarmanns Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ „Þessi staður er ákaflega óheppilegur“ Beita öllum brögðum til að minnka tjón ef hraunið nær bænum Grindvíkingur ógnaði björgunarsveitarfólki með skotvopni „Minni kraftur í þessu samanborið við fyrri gos“ Myndir: Eldgos ógnar Grindavík Snýst allt um að tryggja öryggi fólks Gos við bæjarmörkin: Aukafréttatími í hádeginu Ein af dekkstu sviðsmyndunum að raungerast Björgunarsveitarfólki ógnað við rýmingu Eldgosið séð úr lofti Vonast til að hefja störf í Grindavík strax á morgun Sterkari merki en fyrir síðustu eldgos Bein útsending: Ræða skýrslu fjármálastöðugleikanefndar Gestir vaktir og Bláa lónið rýmt í snatri Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Sjá meira