Íslenskt lyfjafyrirtæki sem vinnur að þróun lyfs við lungnaþembu lauk nýlega tveggja milljóna evra hlutafjáraukningu eða sem svarar til 275 milljóna króna.
Fyrirtækið heitir Epiendo Pharmaceuticals ehf. og í byrjun desember var það valið eitt af þeim 75 fyrirtækjum sem fær 340 milljóna styrk frá evrópska nýsköpunarráðinu (EIC). Sú styrkveitingin kemur með ásetningi um viðbótarfjárfestingu uppá um 370 milljónir króna frá EIC næsta vor.
Eftir þessa hlutafjáraukningu sem var leidd af ABC Venture ehf. eru hluthafar félagsins um 70 talsins.
„Þeir fyrstu sem komu inn sættu sig við það að skyggnið inn í framtíðina var slæmt. Síðan hefur verið gerð meiri krafa um skýrari sýn á það hvernig þeir munu á endanum geta losað um fjárfestinguna,“ segir stofnandinn og læknirinn Friðrik Rúnar Garðarsson í viðtali við Markaðinn í dag.
Magnús Kristinsson útgerðarmaður, Ólafur Björnsson, eigandi Dalsness, Ingi Guðjónsson, einn eigenda Lyfju, og Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson, eigandi Súper1 eru á meðal hluthafa samkvæmt því sem fram kemur í Markaðnum í dag.
Félagið var stofnað árið 2014 af Friðriki Rúnari, sem komst í fréttirnar árið 2016 þegar honum var bjargað á rjúpnaveiðum. Friðrik Rúnar á stærstan hlut í fyrirtækinu.
Hefur félagið fengið um 1,1 milljarð króna í hlutafé og styrki frá stofnun að því er fram kemur í tilkynningu frá Epiendo.
ABC Venture ehf. er stýrt af Baldvini Valtýssyni og Ívari Guðjónssyni.
Tryggja sér fleiri hundruð milljónir í þróun lyfs við lungnaþembu

Tengdar fréttir

Ólýsanleg tilfinning að sjá ljósin á vélsleðanum
Friðrik Rúnar Friðriksson fannst í morgun eftir að hafa orðið viðskila við vini sína á rjúpnaveiðum á föstudag.

Íslenskt sprotafyrirtæki tryggði 110 milljóna fjármögnun til lyfjaþróunar
Epiendo, sprotafyrirtæki í frumlyfjaþróun, lauk í gær 110 milljón króna fjármögnun.

Friðrik Rúnar: „Afleitt að hafa kallað yfir ykkur þá angist og óvissukvöl sem því fylgdi að ég skyldi týnast“
Friðrik Rúnar Garðarsson, rjúpnaskyttan sem komst í leitirnar á sunnudag eftir stórfellda leit segist standa í eilífri þakkarskuld við björgunarsveitarmenn.

Rjúpnaskyttan skar áður bensíndælur í sundur en hvetur nú til viðskipta við Olís
Friðrik Rúnar Garðarsson, rjúpnaskyttan sem var bjargað úr óbyggðum á Austurlandi fyrr í haust, þekkir bensíndælur betur en flestir.