Hátíð matgæðinga í Hörpu Matarmarkaður Íslands kynnir 12. desember 2019 14:00 Einstakt tækifæri gefst um helgina til að smakka spennandi matarnýjungar í Hörpu. Helga Björnsdóttir „
Það skapast alltaf sérstök stemning á matarmarkaði sem ekki er hægt að lýsa. Þetta er alveg einstök upplifun,“ segir Hlédís Sveinsdóttir, sem stendur að Matarmarkaði Íslands í Hörpu ásamt Eirný Ósk Sigurðardóttur. Markaðurinn er um helgina og er opið frá klukkan 11 til klukkan 17, laugardag og sunnudag. Er þetta áttunda árið sem þær halda matarmarkaði saman. Yfir fjörutíu matvælaframleiðendur taka þátt og bjóða upp á ljúffengan mat sem bragð er að. Hlédís segir markaðinn frábært tækifæri til að kynnast einstakri matarmenningu. Og Náttúra verður á markaðnum um helgina.Helga Björnsdóttir Matarhandverk alls engin bóla „Á markaðnum komast neytendur í sérstakar vörur sem ekki er hægt að nálgast annarsstaðar og geta talað beint við framleiðandann. Þetta eru eiginlega „matarhetjur" þessir framleiðendur. Margir koma langt að, hafa búið til hráefnið, unnið það og pakkað og eru núna mættir til að selja sjálfir í Hörpu þessa helgi. Ástríða þessa fólks smitar út frá sér. Matarhandverk styrkist með hverju árinu og það fjölgar stöðugt í hópi matvælaframleiðenda á Íslandi. Það hefur verið frábært að fylgast með þeirri framþróun sem hefur orðið síðustu ár,“ segir Hlédís enda mikið vatn runnið til sjávar frá því fyrsti matarmarkaðurinn var haldinn í tjaldi fyrir utan verslun Eirnýjar. „Við Eirný deilum áhuga á matarhandverki, ég kom upphaflega úr verkefninu Beint frá býli og Eirný var með verslunina Búrið sem lagði áherslu á innlent matarhandverk. Hún bjó einnig lengi erlendis og þekkti vel til matarmarkaða og langaði til að halda matarmarkað á Íslandi. Við byrjuðum bara í tjaldi fyrir utan verslunina hennar og þar stóðu framleiðendur vaktina í kraftgöllum. Aðsóknin var frábær og tjaldið troðfylltist alltaf. Annað árið var þetta orðið allt of umfangsmikið fyrir eitt tjald og við fengum þá klikkuðu hugmynd að halda markaðinn í Hörpu. Nú er hann haldinn tvisvar til þrisvar á ári, í byrjun mars og fyrir jól og stundum yfir sumartímann líka.“ William Óðinn Lefever verður með chili sósuna Beru á markaðnum um helgina. Sjá myndband: Kynna uppruna matarins fyrir ungu kynslóðinniUmhyggja, uppruni og upplifun eru einkunnarorð markaðarins. Hlédís segir mikilvægt að fræða komandi kynslóðir um allan mat, hvaðan hann kemur og hvaða næringu hann inniheldur. Á markaðnum um helgina verða yngstu gestirnir sérstaklega velkomnir og boðið í skemmtilegan ratleik. „Það er okkar að miðla til komandi kynslóða og vekja áhuga þeirra,“ segir Hlédís. „Hvort sem fólk er kjötætur, grænkerar eða vegan er mikilvægt að vita hvaðan maturinn kemur, hvernig hann er unninn og hvað við fáum úr honum. Allt skiptir máli, aðbúnaður, aflífun og eins kolefnissporið sem framleiðslan skilur eftir sig." Holt og heiðar eru með spennandi framleiðslu.Helga Björnsdóttir „Mikilvægast er að matvæli séu hrein og sanngjörn, fyrir jörðina, framleiðendur og neytendur. Á markaðnum fá krakkarnir taupoka sem inniheldur skemmtilegan ratleik. Þau þurfa að fara um markaðinn og svara spurningum um íslensku bragðörkina. Það eru Slow food samtökin á Íslandi sem sjá um ratleikinn og halda hann í samstarfi við okkur, Matís og Matarauð Íslands. Slow food samtökin fanga 30 ára afmæli í dag og er 10. desember dagur móður jarðar. Það er því vel við hæfi að aðalfundur samtakana sé haldinn í salnum Stemmu í Hörpu, sunnudaginn 15. desember klukkan 11. Allir velkomnir og sérstaklega nýjir meðlimir." Móðir Jörð framleiða lífrænar vörur.Helga Björnsdóttir Eitthvað fyrir allaHlédís segir fjölbreytileika einkenna markaðinn. Allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Þá sé bráðsniðugt að gera jólagjafainnkaup á markaðnum. „Það er fátt sem segir jafn skýrt "ég elska þig" og að gefa góðan mat í jólagjöf," segir Hlédís. „Þarna verður hægt að finna allt í aðventusnarlið, hátíðartmatinn og svo verða að venju allskonar spennandi nýjungar eins og sjósaltkaramellusýróp. Fjölbreytnin er svo mikil ár eftir ár og þetta er aldrei sami markaðurinn. Alltaf bætast einhverjar nýjungar við enda verður vöruþróunin til í þessu samtali neytenda og framleiðenda sem skapast á markaðnum.“ Stemningin er einstök á hverju ári.Helga Björnsdóttir Markaðurinn er opin frá klukkan 11 til klukkan 17 um helgina og aðgangur er ókeypis. Eirný Sigurðardóttir og Hlédís Sveinsdóttir standa fyrir matarmarkaði í Hörpu um helgina. Þessi kynning er unnin í samstarfi við Matarmarkað Íslands.
Matur Mest lesið Seldist upp daginn eftir kosningasigur Kristrúnar Tíska og hönnun Laufey Lín og Bjarki á lista Forbes Lífið Birgitta prinsessa er látin Lífið „Risa tilkynning“ Lífið Gleðilegir gestir í hátíðarskapi á safninu Menning „Ég myndi ekki vilja fá þetta í andlitið“ Lífið Þetta hlustaði heimsbyggðin á árið 2024 Lífið Taka sér hlé hvort frá öðru Lífið Til að fá listamannalaun þarftu að vera í náðinni Lífið 40 ára kona: Er of seint að deita konur? Lífið Fleiri fréttir Ein ákvörðun getur miklu breytt - ritdómur Jülevenner er jólasýning sem fer alltaf úr böndunum Nýtt íslenskt tískuvörumerki opnar glæsilega verslun Jólatrjáasala til styrktar góðu málefni Gjöfin fyrir grillarann og pizzagerðina fæst hjá Grillkofanum Yerma er jólasýning Þjóðleikhússins Sparitímabilið er að hefjast, er fataskápurinn klár? Hópkaup hefur sparað þjóðinni 4,5 milljarða Kláraðu allar jólagjafirnar á einu bretti Síðasti Bókakonfektmolinn - Höfundar lesa í kvöld Ritdómur: ,,Þú hatar ekki að vera með píku, er það?“ Gleði á forsýningu Sambíóanna og Bylgjunnar á Vaiana 2 Ritdómur Lestrarklefans: Eins konar dans Smáralindin fylltist af bókþyrstum gestum Bókaumfjöllun: Einlæg og íhugul skáldævisaga Höfundar lesa upp úr bókum sínum í beinni í kvöld Bókadómur: Þörf bók um missi Frábært gjafakort sem gleymist ekki ofan í skúffu Skautadiskó til styrktar góðu málefni Vestfjarðaglæpasaga sem kemur á óvart Bókakonfekt Forlagsins: Níu höfundar lesa upp í kvöld Ritdómur: Naskar mannlýsingar í misjöfnu verki Troðfull Smáralind af krökkum að fylgjast með Birgittu Bókaumfjöllun: Að hverfa í tómið Bókaumfjöllun: Kjarkmiklar og áræðnar konur Rauðvínsgljáður sviðakjammi og mysuglassúr á kleinu Höfundar lesa upp í beinni Upplifun og dýrmætar minningar í jólagjöf Bókaumfjöllun: Netflix áhrif í ljúfri jólaástarsögu Bókaumfjöllun: „Allt sem rafmagnið huldi“ Sjá meira