Él eða slydduél sunnan- og vestantil þegar líður á daginn Atli Ísleifsson skrifar 30. desember 2019 07:00 Má búast við frost 0 til 6 stig, en frostlaust með suður- og vesturströndinni seinnipartinn. vísir/vilhelm
Landsmenn mega eiga von á fremur hægri vestlægri átt fram eftir degi á mest öllu landinu þar sem þurrt verður að mestu. Síðdegis er hins vegar spáð éli eða slydduéli sunnan- og vestantil síðdegis og suðvestan 8 til 13 metrar á sekúndu. Má búast við frost 0 til 6 stig, en frostlaust með suður- og vesturströndinni seinnipartinn. Á vef Veðurstofunnar segir svo að í nótt snúist svo í sunnanátt með rigningu, fyrst suðvestanlands, og megi búast við að það rigni eitthvað fram á nýársnótt um sunnanvert landið. Minniháttar úrkoma og ekki jafn lágskýjað norðaustanlands. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag (gamlársdagur): Sunnan 10-18 m/s, en hægari vindur norðan- og vestanlands undir kvöld. Úrkomulítið um landið norðaustanvert, en rigning í öðrum landshlutum, talsverð sunnanlands. Hiti 2 til 7 stig. Á miðvikudag (nýársdagur): Suðvestan 10-18, en hægari vindur seinnipartinn. Úrkoma víða um land, yfirleitt rigning við ströndina, en slydda eða snjókoma inn til landsins. Hiti 0 til 5 stig. Á fimmtudag: Gengur í allhvassa eða hvassa norðanátt með snjókomu norðantil á landinu, en éljum syðra fram eftir degi. Kólnar í veðri, frost 3 til 8 stig síðdegis. Á föstudag: Minnkandi norðvestan- og vestanátt og léttskýjað, en dálítil él norðaustanlands. Kalt í veðri. Á laugardag: Vaxandi sunnanátt og þykknar upp á Suður- og Vesturlandi með rigningu, en þurrt að kalla um landið norðaustanvert. Hiti 2 til 8 stig. Á sunnudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt og skúrir. Vestlægari síðdegis og él á vestanverðu landinu. Þurrt að mestu norðaustantil. Kólnar lítillega.
Veður Mest lesið „Þetta er bara það sem aðrir hópar hjá okkur hafa fengið í gegnum tíðina“ Innlent Engin röð á Læknavaktinni Innlent Lítil huggun í svörum sendiráðsins og íþróttafólki hótað lífstíðarbanni Innlent Nágranni vill banna kylfingum að nota veginn að Bakkakotsvelli Innlent Vilja að RÚV feti í fótspor Slóveníu Innlent Ógeðslega stoltur af kennurum Innlent Kjarasamningur kennara í höfn Innlent Einróma samþykki og borgarstjóri í skýjunum Innlent Yfir 50 látist af völdum óþekktra veikinda í Austur-Kongó Erlent Segir lífeyrisgreiðslur skertar á fölskum forsendum Innlent Fleiri fréttir 140 listamenn vilja hvalkjöt af matseðlinum Lítil huggun í svörum sendiráðsins og íþróttafólki hótað lífstíðarbanni Handtökur vegna nágrannaerja og slagsmála í miðbænum Nágranni vill banna kylfingum að nota veginn að Bakkakotsvelli Vilja að RÚV feti í fótspor Slóveníu „Þetta er bara það sem aðrir hópar hjá okkur hafa fengið í gegnum tíðina“ Ógeðslega stoltur af kennurum Einróma samþykki og borgarstjóri í skýjunum Kjarasamningur kennara í höfn Engin röð á Læknavaktinni Segir lífeyrisgreiðslur skertar á fölskum forsendum Reykjavík ekki ljót borg Hefur enga skoðun á máli Ragnars Þórs Ókunnugir og fyrrverandi meðal þeirra sem gætu verið að fylgjast með Segir upp eftir rúma tvo áratugi í starfi: „Það virðist enginn hlusta“ Bylgjan og FM957 liggja niðri Skjálftavirkni fer vaxandi Kjaftshögg, falin hætta og deila um íslenska atriðið Vilja styrkja viðgerðir á sögufrægum byggingum Kjarnorkukafbátur í Eyjafirði Konur á miðjum aldri þær sem helst áreita karlkyns lögregluþjóna Verði gott fyrir lögreglu að vita hvar mörkin liggja Atburðir helgarinnar kjaftshögg fyrir kennara Buguðu foreldrarnir mæti þegar þeir sjá birta til „Ef ég segði Hitler skepnu væri ég þá að blammera alla þýsku þjóðina?“ Taldi drenginn myndu deyja yrði hann ekki umskorinn Verður á launum hjá stéttarfélagi og Alþingi út júní Leita að línunni Sólveig með sama rétt en segist ekki myndu nýta hann Viðkvæðið enn að kennarar yngri barna eigi minna skilið Sjá meira