Rafíþróttir

Úrslitin ráðast í Vodafone-deildinni: „Rúsínan í pylsuendanum“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gunnar Ormslev er spekingur í CS.
Gunnar Ormslev er spekingur í CS. vísir/s2s

Það er stórleikur í Vodafone-deildinni í kvöld er tvö bestu liðin, Fylkir og Dusty mætast, en útsending hefst klukkan 21.45 á Stöð 2 eSport.

Dusty hefur verið eitt allra besta lið landsins en Fylkismenn hafa verið að skapa sér nafn og er því afar áhugaverður leikur framundan í kvöld. Keppt er í Counter-Strike: Global Offensive.

„Þetta er rúsínan í pylsuendanum sem Vodafone-deildin er búin að vera. Þetta eru tvö sterkustu liðin sem eru að fara mætast. Þetta eru nýju, ungu, hungruðu strákarnir gegn eldri strákunum sem hafa verið á toppnum mjög lengi,“ sagði Gunnar Ormslev, spekingur.

„Þetta er leikurinn sem allir eru búnir að vera hlakka til síðan tímabilið byrjaði. Dusty eru búnir að vera síðustu 2-3 árin langbestir á Íslandi og hafa gengið í gegnum heilu árin án þess að tapa leikjum. Þeir hafa gjörsamlega átt CS senuna. Fylkir er búið að vera á uppleið síðustu tvö ár en hafa ekki verið tilbúnir í að taka þetta næsta skref; að sigra þessa seigu stráka.“

„Undanfarið hafa Fylkir verið sannfærandi og eru ekki búnir að tapa einum einasta korti í deildinni á meðan Dusty töpuðu í 1. umferðinni. Þetta verður almennileg veisla í kvöld.“

Allt viðtalið við Gunnar má heyra hér að neðan.

Klippa: Sportið í dag - Stórleikur í Vodafone deildinni í kvöld

Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.






×