United hefur áhuga á manni sem fæddist í Liverpool og spilaði með Man. City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. maí 2020 11:45 Rabbi Matondo er hér umkringdur Bæjurum í leik Schalke 04 og Bayern München í þýska bikarnum. EPA-EFE/DAVID HECKER CONDITIONS
Manchester United þarf væntanlega að borga mikinn pening ætli félaginu að takast að kaupa Jadon Sancho af Borussia Dortmund. Það er því betra að eiga aðra kosti sé verðmiðinn á endanum of hár. Leikmaðurinn sem Manchester Evening News segir United hafi áhuga á í staðinn er vængmaður að nafni Rabbi Matondo. Rabbi Matondo er velskur landsliðsmaður en hann er fæddur í Liverpool og var í þrjú ár hjá Manchester City. Rabbi Matondo er 19 ára gamall og hefur spilað með Schalke 04 frá því í fyrra. Hann er einn af ungu leikmönnunum sem yfirgáfu Manchester City til að fá tækifæri til að spila. Manchester United could make a move for Schalke's Wales winger Rabbi Matondo.Latest #football gossip ?? https://t.co/J9uOLHSMIU #bbcfootball #manutd #mufc pic.twitter.com/0SW18E0Mn7— BBC Sport (@BBCSport) May 14, 2020 Manchester United mistókst að kaupa Sancho í fyrra og ákváðu þá að kaupa Daniel James frá Swansea City í staðinn. United fékk hann á fimmtán milljónir punda. Heimildarmenn Manchester Evening News segja að Manchester United líti á Matondo með sömu augum og þeir gerðu Daniel James síðasta sumar. Daniel James átti síðan ágætis fyrsta tímabil með Manchester United liðinu. Það hjálpa vissulega að Manchester United goðsögnin Ryan Giggs þekkir Rabbi Matondo orðið vel eftir að hafa valið hann í velska landsliðið og gefið honum fjóra landsleiki. Manchester Evening News: El #ManUnited, en caso de que no fuera posible la contratación de Jadon Sancho (20| ) en el próximo mercado, apostaría por Rabbi Matondo (19| ) extremo del #Schalke04 con contrato hasta 2023, quien ya es internacional por Gales. pic.twitter.com/FVOAu7uGaJ— Fútbol Mundial (@iFutbola) May 15, 2020 Giggs á víst að hafa mælt með því við Ole Gunnar Solskjær að Manchester United nái í þennan efnilega leikmann frá Schalke. Rabbi Matondo skoraði 1 mark í 12 deildarleikjum með Schalke 04 á þessu tímabili sem var hans fyrsta hjá félaginu. Jadon Sancho var hins vegar með 14 mörk og 16 stoðsendingar í 23 deildarleikjum með Borussia Dortmund.
Enski boltinn Mest lesið Fann ástina í örmum skilnaðarlögfræðingsins Fótbolti Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri Handbolti Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Handbolti Kærir föður sinn fyrir fjársvik Sport Fór holu í höggi yfir húsið sitt Golf Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Fótbolti Van Nistelrooy mættur aftur í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Fótbolti Leggja niður störf og föst laun stórmeistara Sport Ráða njósnara á Íslandi Fótbolti Fleiri fréttir Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Van Nistelrooy mættur aftur í ensku úrvalsdeildina Coote gaf gult spjald eins og hann talaði um fyrir leik Segir það sárt að vera ekki velkominn hjá Liverpool Metinn á rúmlega 17 milljarða fyrr á árinu en má nú fara á láni Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Carragher segir Salah vera eigingjarnan Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Sjá meira