Borgarafundur vegna útbreiðslu kórónuveirunnar á Íslandi Þórir Guðmundsson skrifar 10. mars 2020 17:30 Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Alma Möller landlæknir svara spurningum almennings á borgarafundi fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar á fimmtudagskvöld. Vísir/Vilhelm
Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar stendur fyrir borgarafundi með forystufólki almannavarna, forsætisráðherra og seðlabankastjóra á fimmtudagskvöld þar sem almenningi gefst tækifæri til að spyrja beint um útbreiðslu kórónuveirunnar. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Alma Möller landlæknir svara spurningum í fyrri hluta þáttarins í beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi. Í síðasta hluta þáttarins verða Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri til svara. Borgarafundurinn verður í beinu framhaldi af fréttum á Stöð 2 kl. 18:55 á fimmtudagskvöld og stendur í 90 mínútur. Fólki gefst kostur á að spyrja Víði, Þórólf, Ölmu, Katrínu og Ásgeir spurninga sem því liggur á hjarta vegna kórónufaraldursins. Hægt er að senda spurningar á fréttastofu í gegnum Vísi og með pósti á [email protected] bæði fyrir fundinn og meðan á honum stendur, eða með því að setja athugasemd við þessa frétt. Til þess að auka ekki líkur á smiti með því að efna til fjöldasamkomu þá verður þetta rafrænn fundur og spurningar verða ekki bornar fram úr sal. Borgarafundurinn verður í opinni dagskrá á Stöð 2 og er sendur út samtímis á Vísi.
Wuhan-veiran Heilbrigðismál Almannavarnir Mest lesið Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Innlent Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Innlent Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Innlent Svona var blaðamannafundur nýs meirihluta í Reykjavík Innlent Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Innlent Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Innlent Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Innlent Svona skipta oddvitarnir stólunum Innlent Verkföll hafin í sex skólum Innlent Gátu ekki lent í þoku í Osló því flugmenn eru enn í þjálfun á Airbus Innlent Fleiri fréttir Kennarar gengu út og nýr borgarstjórnarmeirihluti Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Svona skipta oddvitarnir stólunum Voru búin að segja að þeim hugnaðist ekki tillaga Ástráðs Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur“ Skilur vel reiðina sem blossi upp Útganga kennara kom formanninum í opna skjöldu Gátu ekki lent í þoku í Osló því flugmenn eru enn í þjálfun á Airbus Svona var blaðamannafundur nýs meirihluta í Reykjavík Óljóst með skólahald eftir helgi Trans fólk veigri sér við ferðalögum til Bandaríkjanna Nýr meirihluti muni ekki vaða í stærri deilumál Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Jöklar jarðar rýrna mun hraðar en áður vegna aukinnar hlýnunar Niðurstöðu beðið í Karphúsinu Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Búrfellslundur verður Vaðölduver Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Zúistabræður telja sig ekki hafa fengið sanngjarna meðferð Verkföll hafin í sex skólum Kennaraverkföll skella á Skólameistari gengur út frá því að kennarar leggi niður störf Óvissa um verkföll eftir frestunarbeiðni Áfastir tappar dragi úr lífsvilja Sjá meira