Blæju Tesla Model 3 fáanlegur Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 22. maí 2020 07:00 Blæju Tesla Model 3
Newport Convertible Engineering hefur kynnt nýjustu afurð sína, blæju útgáfu af Tesla Model 3. Tesla smíðar í augnablikinu enga blæju bíla. Fyrirtækið byrjaði framleiðslu sína með Tesla Roadster sem var raunar bíll keyptur af Lotus og breytt í rafbíl. Elon Musk hefur lofað að næsta kynslóð blæjubíls frá Tesla komist næstum 1000 km. á hleðslunni og nái yfir 400 km. hraða á klukkustund. Fyrir óþolinmótt fólk og efasemda raddir hefur Newport Convertible Engineering smíðað sína eigin útgáfu af blæju Teslu. Blæju Tesla Model 3 með toppinn uppi. Newport Convertible Engineering hefur tekið toppinn af Range Rover bílum, Toyota Prius-um og Cadillac Escalade-um. Þá hefur fyrirtækið einnig tekið þakið af Tesla Model S. Blæju útgáfan af Tesla Model 3 er enn fjögurra dyra og B pósturinn er áfram á sínum stað. Það er þónokkur vinna sem hefur farið í verkefnið. Toppurinn er orðinn að mjúku efni sem brýst auðveldlega saman ofan á skott bílsins.
Vistvænir bílar Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent