Grípi til nauðsynlegra aðgerða til að koma í veg fyrir þjóðarmorð á Róhingjum Atli Ísleifsson skrifar 23. janúar 2020 13:02 Aung San Suu Kyi, leiðtogi Mjanmar, hlaut Friðarverðlaun Nóbels árið 1991 fyrir mannréttindabaráttu sína í landinu. Getty
Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur fyrirskipað að yfirvöld í Mjanmar ráðist í allar nauðsynlegar aðgerðir til að koma í veg fyrir þjóðarmorð á Róhingjum, minnihlutahópi múslima, í landinu. Aung San Suu Kyi, leiðtogi landsins, hafnaði í síðasta mánuði ásökunum gegn stjórnvöldum í landinu fyrir dómstólnum. Þúsundir Róhingja hafa látið lífið og rúmlega 700 þúsund flúið til nágrannaríkisins Bangladess frá því að aðgerðir mjanmarka hersins gegn byggðum Róhingja hófust árið 2017. Dómstóllinn krefur mjanmörsk stjórnvöld um að skila skýrslu til dómstólsins eftir fjóra mánuði og síðan á sex mánaða fresti þar sem farið verði yfir stöðu og þróun mála. Komið skuli í veg fyrir dráp á Róhingjum og allt ofbeldi í garð þeirra. Tilmælin eru bindandi og ekki er hægt að áfrýja ákvörðuninni, en dómstóllinn hefur hins vegar engar leiðir til að framfylgja henni. Mjanmörk stjórnvöld hafa rökstutt aðgerðir hersins gegn byggðum Róhingja að verið sé að bregðast við skæruliðahernaði þeirra.
Mjanmar Róhingjar Mest lesið Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Innlent Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Innlent Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Innlent Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira