Maður sem sakaður er um að hafa myrt 22 og sært 26 í verslun Walmart í El Paso í Texas í fyrra hefur verið ákærður fyrir hatursglæpi á alríkisvísu og er ákæran í 90 liðum. Maðurinn játaði verknaðinn þegar hann var handtekinn og sagðist hafa reynt sérstaklega að myrða fólk frá Mexíkó. Frá þessu er greint á vef breska ríkisútvarpsins.
Hinn 21 árs gamli Patrick Crusius hefur þegar verið ákærður í ríkisdómstóli Texas fyrir morð af ásetningi. Ákærurnar um hatursglæpi á alvísu voru lagðar fram fyrir alríkisdómstóli.
Ef Crusius verður sakfelldur fyrir árásina sem gerð var í ágúst í fyrra gæti hann átt yfir höfði sér dauðadóm. Saksóknari sagði fyrir dómi að árásin hafi verið innanríkishryðjuverk og árás gegn heilum þjóðernishópi.
Skotárásin er talin vera sú áttunda skæðasta í nútímasögu Bandaríkjanna og átti hún sér stað í El Paso í Texas, bæ við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó. Þar búa um 680 þúsund manns og rekur um áttatíu prósent íbúanna uppruna sinn til Mið- og Suður-Ameríku.
Crusius er sakaður um að hafa keyrt í ellefu klukkustundir frá heimabæ sínum Allen til El Paso þann 3. ágúst síðastliðinn. Þá er hann sakaður um að hafa skotið fólk á færi með AK-47 hríðskotariffli inni í Walmart búð.
Eftir að árásinni lauk ók Crusius í burtu en var stöðvaður af lögreglu skammt frá versluninni. Hann á að hafa stigið út úr bílnum með hendur á lofti og sagt „Ég er byssumaðurinn.“
Í yfirlýsingu sem hann birti á spjallborðinu 8chan, sem er mikið notað af öfgafólki, skrifaði hann að morðin væru svar við „innrás spænskættaðra í Texas.“
