Aðstandendur hins svokallaða Karlahlaups Krabbameinsfélags Íslands, sem fram átti að fara á sunnudag, hafa ákveðið að fresta hlaupinu vegna yfirstandandi verkfalls Eflingar í Reykjavíkurborg. Meðal þeirra félagsmanna Eflingar sem lögðu niður störf eru þau sem sinnt hafa snjóruðningi á hinum ýmsu stígum borgarinnar. Ætlunin var að leggja af stað frá Hörpu og hlaupa sem leið sem leið liggur austur eftir Sæbraut og til baka, alls 5 kílómetra. Af því verður þó ekki.
„Vegna verkfalls Eflingar er of mikil óvissa um hvort félaginu sé kleift að halda Karlahlaupið á sunnudaginn eins og fyrirhugað var en félagsmenn Eflingar sjá um lokanir gatna og mokstur á stígum” segir Halla Þorvaldsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagins. í tilkynningu sem send var út vegna frestunarinnar.
Halla segir aukinheldur að sér þyki þetta bagaleg staða, ekki síst fyrir alla þá sem höfðu gert ráðstafanir til að geta tekið þátt í hlaupinu. Búið sé þó að hafa samband við alla sem skráðu sig og þeim gert viðvart.
„Ný dagsetning verður tilkynnt mjög fljótlega en stefnt er að því að hlaupið muni marka lok Mottumars í stað upphafs átaksins eins og ráðgert var enda trúum við því að samningsaðilar hafi þá náð saman. Kosturinn er að nú gefst karlmönnum enn betri tími til undirbúnings fyrir Karlahlaupið,” segir Halla.
Ekki hefur verið boðað til nýs fundar í kjaradeilu Eflingar og Reykjavíkurborgar en síðast var fundað á miðvikudag. Ótímabundnar verkfallsaðgerðir Eflingar halda því áfram en þær hafa staðið yfir í tæpar tvær vikur.
