Hvassviðri og snjókoma í kortunum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. febrúar 2020 07:15 Það mun eitthvað snjóa á Vestfjörðum í dag. vísir/samúel
Það er útlit fyrir allhvassa eða hvassa norðaustan- og austanátt í dag en hægari vindur verður þó austan lands. Þá mun stór hluti höfuðborgarsvæðisins vera í þokkalegu skjóli að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Allvíða á norðurhelmingi landsins mun snjóa, ýmist í formi élja eða samfelldri snjókomu. Sunnan lands má síðan búast við slyddu eða snjókomu því úrkomubakki verður þar viðloðandi. Faxaflóasvæðið sleppur þó að mestu við úrkomu í dag. Hiti verður í kringum frostmark. „Á morgun (laugardag) er minnkandi norðanátt í kortunum með dálitlum éljum, en yfirleitt úrkomulaust sunnan til á landinu. Það kólnar smám saman í veðri. Á sunnudag gera spár ráð fyrir að gangi í stífa vestan- og suðvestanátt með éljagangi, en þurrt og bjart veður um landið austanvert,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.Veðurhorfur á landinu:Norðaustan og austan 13-20 m/s í dag, en hægari vindur austanlands. Snjókoma eða él um landið norðanvert, slydda eða snjókoma sunnanlands, en þurrt að mestu við Faxaflóa. Hiti kringum frostmark.Norðlæg átt 8-13 á morgun og él, en þurrt sunnan til á landinu. Vægt frost. Lægir undir kvöld og kólnar meira.Á laugardag:Norðlæg átt 5-13 m/s og él, en þurrt að kalla sunnanlands. Frost 0 til 4 stig. Lægir um kvöldið og kólnar.Á sunnudag:Suðvestan- og vestanátt, víða 10-15 og él, en bjartviðri um landið austanvert. Frost 0 til 6 stig.Á mánudag:Suðlæg átt 5-10. Snjókoma á Suður- og Vesturlandi, en bjart veður norðaustan til á landinu. Hiti breytist lítið.Á þriðjudag og miðvikudag:Austlæg eða breytileg átt og líkur á éljum eða snjókomu í flestum landshlutum. Áfram frost um allt land.
Veður Mest lesið „Snarklikkað fólk“ sem hafi fengið smá lexíu Innlent „Ef ég segði Hitler skepnu væri ég þá að blammera alla þýsku þjóðina?“ Innlent Milljónirnar fari í neyðarsjóð fjölskyldunnar Innlent Samkomulag milli Úkraínu og Bandaríkjanna í höfn Erlent Diljá Mist boðar til fundar Innlent Buguðu foreldrarnir mæti þegar þeir sjá birta til Innlent „Inga gripið til orðfæris í garð blaðamanna sem engum stjórnmálamanni er sæmandi“ Innlent Freistar Bandaríkjanna með gulli og grænum skógum Erlent Ríkisstarfsmenn ráðþrota gagnvart furðulegri fyrirskipun Musk Erlent Litlu mátti muna á flugbrautinni Erlent Fleiri fréttir Reykjavík ekki ljót borg Hefur enga skoðun á máli Ragnars Þórs Ókunnugir og fyrrverandi meðal þeirra sem gætu verið að fylgjast með Segir upp eftir rúma tvo áratugi í starfi: „Það virðist enginn hlusta“ Bylgjan og FM957 liggja niðri Skjálftavirkni fer vaxandi Kjaftshögg, falin hætta og deila um íslenska atriðið Vilja styrkja viðgerðir á sögufrægum byggingum Kjarnorkukafbátur í Eyjafirði Konur á miðjum aldri þær sem helst áreita karlkyns lögregluþjóna Verði gott fyrir lögreglu að vita hvar mörkin liggja Atburðir helgarinnar kjaftshögg fyrir kennara Buguðu foreldrarnir mæti þegar þeir sjá birta til „Ef ég segði Hitler skepnu væri ég þá að blammera alla þýsku þjóðina?“ Taldi drenginn myndu deyja yrði hann ekki umskorinn Verður á launum hjá stéttarfélagi og Alþingi út júní Leita að línunni Sólveig með sama rétt en segist ekki myndu nýta hann Viðkvæðið enn að kennarar yngri barna eigi minna skilið Vill að Ríkisendurskoðun rannsaki styrkjamálið Diljá Mist boðar til fundar Neyðarsjóður Ragnars Þórs og kennarar kallaðir í Karphúsið Samningur felldur: „Vissum að þetta stæði tæpt“ Sýknuð af ákæru fyrir að láta umskera son sinn Milljónirnar fari í neyðarsjóð fjölskyldunnar Hæstiréttur fellst á að taka Hvammsvirkjunarmálið fyrir Kæru Brimbrettafélagsins vegna framkvæmdaleyfis vísað frá Þingflokksformaðurinn styður Áslaugu Örnu „Inga gripið til orðfæris í garð blaðamanna sem engum stjórnmálamanni er sæmandi“ Kom ekki nálægt innanhússtillögu sáttasemjara Sjá meira