Úrvalsliðin etja kappi í Vodafonedeildinni í CS:GO í kvöld. Fjórða umferð deildarinnar fer fram og eru stórleikir í vændum.
Fylkir sem malaði Þór Akureyri í síðustu umferð mætir Dusty í kvöld. Spennandi verður að sjá hvernig stórmeistarar Dusty munu spila gegn hungruðu liði Fylkis.
XY mun mæta sterku liði Þórs sem þó hefur ekki fundið taktinn í deildinni hingað til. Fróðlegt verður að sjá hvernig að XY munu nýta sér heimavallar forskotið.
Lokaleikur kvöldsins verður stórveldið KR á móti reynsluboltunum í Hafinu. KR hefur sýnt glæsilega takta í deildinni hingað til en hafa þó ekki mætt eins sterku liði og Hafinu sem var spáð öðru sæti af sérfræðingum deildarinnar. Þetta er því hörku viðureign í vændum.
Fyrsta viðureign kvöldsins hefst kl 19:30 og verður sýnd á Stöð 2 esport og hér á Vísi.
Leikir kvöldsins verða samkvæmt dagskrá hér að neðan.
19:30 Fylkir - Dusty
20:30 XY - Þór
21:30 KR – HaFiÐ
Útsending hefst 19:15 og stendur yfir fram eftir kvöldi og hægt er að fylgjast með henni hérna.