Í beinni: Vodafonedeildin í CS:GO Bjarni Bjarnason skrifar 6. október 2020 19:02
Úrvalsliðin etja kappi í Vodafonedeildinni í CS:GO í kvöld. Verður ellefta umferð deildarinnar leikin og er þetta önnur viðureign liðanna. Munurinn er þó sá að skipst hefur verið á heimavallar hlutverkinu. En heimavallarliðið fær að velja kortið. Þór og XY mætast í fyrsta leik kvöldsins. Fyrri viðureign liðanna var hörkuspennandi og bar Þór þar sigur úr bítum. En bæði liðin nýttu leikmannagluggann til að næla sér í viðbætur og styrkja sig en frekar. Spennandi verður að sjá liðin mætast í því sem að öllum líkindum verður hnífjafn leikur. Í millileik kvöldsins mætast GOAT og Exile. Breytt lið GOAT leit vel út í síðasta leik og sjáum við í kvöld hvernig þeim hefur gengið að slípa sig saman. Baráttumennirnir í Exile hafa átt góða spretti það sem af er deildinni en eru þó í síðasta sæti. Munu þeir því mæta hungraðir til leiks í von um að klifra upp töflunni. Lokaleikur kvöldsins verður HaFiÐ gegn stórveldi KR. Lið KR hefur sýnt stórkostlega takta í deildinni, lagt hvert liðið á fætur öðru og eru þeir í öðru sæti í deildinni. Sterkt lið Hafsins nartar þó í hælana á þeim úr næsta sæti fyrir neðan. Þetta verður spennandi viðureign í kvöld en fyrri viðureign liðanna sigraði KR. Fyrsta viðureign kvöldsins hefst kl 19:30 og verður sýnd á Stöð 2 esport og hér á Vísi. Leikir kvöldsins verða samkvæmt dagskrá hér að neðan. 19:30 Þór - XY 20:30 GOAT - Exile 21:30 HaFiÐ - KR Útsending er hafin og stendur yfir fram eftir kvöldi og hægt er að fylgjast með henni hérna.
Þór Akureyri KR Vodafone-deildin Mest lesið Orri og félagar duttu út með hádramatískum hætti Fótbolti Segir Müller eiga skilið góða kveðjustund Fótbolti „Verður vonandi tilbúinn fyrir síðustu leiki tímabilsins“ Enski boltinn „Ekki tími ársins til að fara inn í einhverja skel“ Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík 84-75 Stjarnan | Njarðvík tekur foyrsuna í kaflaskiptum leik Körfubolti Sluppu með sigur og hafa haldið oftast hreinu Enski boltinn „Þetta var alveg orðið smá stressandi“ Sport Þjálfari Sveindísar segir starfi sínu lausu Fótbolti Saka sneri aftur og skoraði í sigri Skyttnanna Enski boltinn „Verðum að nýta hvert einasta tækifæri sem við fáum“ Körfubolti