Jón Þór Hauksson, þjálfari kvennalandsliðsins, hefur tilkynnt hvaða leikmenn munu taka þátt í leiknum á móti Svíþjóð í undankeppni EM 2022.
Jón Þór gerir eina breytingu á hópnum frá því í leikjunum á móti Lettum og Svíum á Laugardalsvellinum í síðasta mánuði.
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir kemur inn í hópinn fyrir liðsfélaga sinn í Breiðabliki því Rakel Hönnudóttur dettur út úr hópnum.
Leikurinn fer fram á Gamla Ullevi í Gautaborg þriðjudaginn 27. október og hefst hann klukkan 17:30 að íslenskum tíma.
Ísland og Svíþjóð eru jöfn að stigum í efsta sæti riðilsins með þrettán stig eftir fimm leiki en Svíar eru með betri markatölu.
Hópur Íslands fyrir leikinn gegn Svíþjóð 27. október.
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) October 9, 2020
Our squad for the game against Sweden in the @WEUROEngland22 qualifying.#LeiðinTilEnglands #dottir pic.twitter.com/LepvTvTBJW
Hér fyrir neðan má sjá hópinn:
- Sandra Sigurðardóttir | Valur | 31 leikur
- Cecilía Rán Rúnarsdóttir | Fylkir | 1 leikur
- Sonný Lára Þráinsdóttir | 7 leikir
- Barbára Sól Gísladóttir | Selfoss | 1 leikur
- Guðný Árnadóttir | Valur | 8 leikir
- Ingibjörg Sigurðardóttir | Valerenga | 32 leikir
- Elísa Viðarsdóttir | Valur | 38 leikir
- Anna Björk Kristjánsdóttir | Le Havre | 43 leikir
- Glódís Perla Viggósdóttir | Rosengard | 86 leikir, 6 mörk
- Hallbera Guðný Gísladóttir | Valur | 114 leikir, 3 mörk
- Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir | Valur | 73 leikir, 10 mörk
- Karólína Lea Vilhjálmsdóttir | Breiðablik | 3 leikir, 1 mark
- Alexandra Jóhannsdóttir | Breiðablik | 7 leikir, 2 mörk
- Dagný Brynjarsdóttir | Selfoss | 90 leikir, 29 mörk
- Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir | 10 leikir, 2 mörk
- Sara Björk Gunnarsdóttir | Lyon | 133 leikir, 20 mörk
- Sveindís Jane Jónsdóttir | Breiðablik | 2 leikir, 2 mörk
- Hlín Eiríksdóttir | Valur | 16 leikir, 3 mörk
- Svava Rós Guðmundsdóttir | Kristianstads DFF | 22 leikir, 1 mark
- Agla María Albertsdóttir | Breiðablik | 30 leikir, 2 mörk
- Sandra María Jessen | Leverkusen | 31 leikur, 6 mörk
- Berglind Björg Þorvaldsdóttir | Le Havre | 45 leikir, 4 mörk
- Elín Metta Jensen | Valur | 51 leikur, 16 mörk