Með sigri gegn Íslandi á fimmtudaginn á Slóvakía enn von um að komast á EM kvenna í fótbolta, á kostnað íslenska liðsins. Liðið verður hins vegar án síns aðalmarkaskorara vegna kórónuveirufaraldursins.
Nú er komið að síðustu leikjunum í baráttunni um sæti á EM í Englandi en Slóvakía og Ísland mætast ytra á fimmtudag kl. 17 að íslenskum tíma.
Svíþjóð tryggði sér sigur í F-riðli með því að vinna Ísland í síðasta mánuði. Ísland og Slóvakía berjast um 2. sæti en jafntefli eða sigur á fimmtudaginn tryggir Íslandi það sæti. Liðið í 2. sæti fer í umspil, eða beint á EM ef árangur þess er nægilega góður í samanburði við aðra riðla. Ísland mætir Ungverjalandi á útivelli í lokaumferðinni 1. desember, þegar Slóvakía mætir Svíþjóð.
Valdi stóran hóp til öryggis
Peter Kopun, þjálfari Slóvaka, valdi 25 manna hóp fyrir komandi leiki með það í huga að einhver forföll gætu orðið vegna faraldursins. Það reyndist góð ákvörðun því Patrícia Hmírová, markahrókur pólska liðsins Górnik Leczna, greindist með kórónuveiruna.
Um sannkallað áfall er að ræða fyrir slóvakíska liðið sem hefur aðeins skorað fimm mörk í sínum sex leikjum í undankeppninni. Hmírová hefur nefnilega skorað fjögur þeirra, eða 80%. Hér má sjá mörk hennar gegn Lettlandi í síðasta mánuði, bæði úr vítum, og þriðja víti hennar sem fór hins vegar forgörðum:
Varnarleikur hefur verið aðalsmerki Slóvakíu en þrátt fyrir að vera mikið sterkari aðilinn varð Ísland að láta sér nægja 1-0 sigur þegar liðin mættust á Laugardalsvelli í fyrrahaust. Elín Metta Jensen skoraði þá sigurmarkið um miðjan seinni hálfleik. Hmírová kom sér einmitt í dauðafæri undir lok þess leiks, langbesta færi Slóvaka, en skaut þá framhjá.
Ísland einnig án lykilmanns
Ísland verður einnig án lykilleikmanns í síðustu leikjunum í undankeppninni því Dagný Brynjarsdóttir varð að hætta við þátttöku vegna meiðsla. Sandra María Jessen er heldur ekki með vegna sóttkvíar eftir smit í herbúðum Leverkusen í Þýskalandi. Áður hafði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir neyðst til að hætta við leikina vegna meiðsla og Hólmfríður Magnúsdóttir gaf ekki kost á sér að þessu sinni.