Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari, hefur boðað samninganefndir flugvirkja Landhelgisgæslunnar og ríkisins til fundar klukkan níu í dag.
Eins og kunnugt er eru þeir flugvirkjar Gæslunnar sem sinna viðhaldi á björgunarþyrlum í verkfalli sem hófst þann 5. nóvember.
Engin þyrla hefur verið til taks hjá Landhelgisgæslunni frá því eftir miðnætti í nótt vegna reglubundinnar skoðunar einu starfhæfu þyrlu Gæslunnar. Ljóst er að engin þyrla verður tiltæk að minnsta kosti fram á helgina.
Dragist verkfallið á langinn verður engin þyrla tiltæk hjá Gæslunni eftir 14. desember. Í umfjöllun um málið í Morgunblaðinu í dag kemur fram að í dómsmálaráðuneytinu sé tilbúið frumvarp um lög á verkfallið.
Er vísað í heimildir blaðsins en Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur sagt að það sé til skoðunar að setja lög á verkfallið.
Slík lagasetning var þó ekki til umræðu á ríkisstjórnarfundi í vikunni en eftir þann fund sagði ráðherra í samtali við fréttastofu að hún efaðist um verkfallsrétt flugvirkja Gæslunnar.
Í Morgunblaðinu í dag er einnig vísað í heimildir varðandi það að óeining sé innan ríkisstjórnarinnar um hvort leggja eigi fram frumvarp sem setji lög á verkfallið. Er fullyrt að ráðherrar Vinstri grænna hafi lýst sig andsnúna frumvarpinu.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir í samtali við blaðið að hún hafi ekkert frumvarp séð. Hún leggi áherslu á að „vegna eðlis þessara starfa leggi samningsaðilar sig alla fram við að komast að samkomulagi“.
Fundað var í deilunni síðdegis í gær en án árangurs. Rætt var við Aðalstein Leifsson, ríkissáttasemjara, í beinni útsendingu í fréttum Stöðvar tvö í gærkvöldi. Hann vildi lítið gefa upp um gang viðræðna við samningaborðið en sagði allt kapp lagt á að ná samningum.
„Þetta eru mjög alvarlegar og þungar og erfiðar samningaviðræður en við vinnum þetta áfram og ég hef boðað til fundar strax aftur klukkan níu í fyrramálið til þess að við höldum áfram að vinna úr þessu og reyna að finna leiðir og lausnir,“ sagði Aðalsteinn.