Biden sagður ætla að tilnefna Becerra sem heilbrigðisráðherra Atli Ísleifsson skrifar 7. desember 2020 07:42 Xavier Becerra gegnir nú embætti dómsmálaráðherra Kaliforníu en sat þar áður á Bandaríkjaþingi á árunum 1993 til 2017. Joe Biden, verðandi Bandaríkjaforseti, hyggst tilnefna Xavier Becerra, dómsmálaráðherra Kaliforníu, til að gegna embætti heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn sinni.
New York Times segir frá þessu, en Biden eða starfslið hans hafa enn ekki staðfest upplýsingarnar. NBC segir frá því að Biden hafi hringt í Becerra á föstudaginn. Ljóst er að nýs heilbrigðisráðherra bíður ærið verkefni en verkefni sem tengjast viðbrögðum Bandaríkjastjórnar við heimsfaraldri kórónuveirunnar munu að stórum hluta lenda á hans borði. Hinn 62 ára Becerra hefur áður átt sæti í fulltrúadeild Bandaríkjaþings en þar sat hann árunum 1993 til 2017. Hann var jafnframt í forsvari fyrir bandalagi nokkurra ríkja sem börðust gegn tilraunum Donalds Trump og stjórnar hans að leysa upp sjúkratryggingakerfið sem kennt er við Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hið svokallaða Obamacare. Þá segir Politico frá því að Biden hafi ákveðið að tilnefna Rochelle Walensky sem nýjan forstjóra Lýðheilsustofnunar Bandaríkjanna, CDC. Hún starfar sem prófessor við Harvard-háskólann og stýrir smitsjúkdómadeild Massachusetts General Hospital.
Bandaríkin Joe Biden Mest lesið „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Innlent Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Erlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Innlent Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Innlent Fer fram á stjórnsýsluúttekt á aðdraganda lokunarinnar Innlent Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Innlent Fleiri fréttir Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Halda frekari viðræður um „pirrandi atriði“ og samskipti ríkjanna Sjá meira