Rætt við ráðherra eftir ríkisstjórnarfund Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 8. desember 2020 10:22 Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, fékk tillögur sóttvarnalæknis að næstu aðgerðum í hendur í gær. Vísir/Vilhelm Tillögur Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis, um næstu aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins voru ræddar á ríkisstjórnarfundi í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í morgun. Núverandi aðgerðir gilda til og með morgundeginum og þarf ný reglugerð Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, varðandi næstu aðgerðir því að taka gildi á fimmtudag. Sóttvarnalæknir skilaði minnisblaði með tillögum sínum til ráðherra í gær. Ekkert hafði verið gefið upp um það hvað fólst í tillögum Þórólfs en hann sagði á upplýsingafundi í gær að fara þyrfti mjög hægt í tilslakanir þótt að tölur um nýgreind smit síðustu daga hafi verið ánægjulegar. Vísir var í beinni útsendingu frá ráðherrabústaðnum og ræddi við ráðherra um leið og ríkisstjórnarfundi lauk. Í spilaranum hér fyrir neðan má sjá viðtal við heilbrigðisráðherra þar sem hún greinir frá helstu breytingum sem verða á samkomutakmörkunum. Hér fyrir neðan má svo sjá viðtal við Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra, sem kom af ríkisstjórnarfundi skömmu á undan heilbrigðisráðherra. Í vaktinni þar fyrir neðan má svo lesa um allt það helsta. Fréttin hefur verið uppfærð.
Núverandi aðgerðir gilda til og með morgundeginum og þarf ný reglugerð Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, varðandi næstu aðgerðir því að taka gildi á fimmtudag. Sóttvarnalæknir skilaði minnisblaði með tillögum sínum til ráðherra í gær. Ekkert hafði verið gefið upp um það hvað fólst í tillögum Þórólfs en hann sagði á upplýsingafundi í gær að fara þyrfti mjög hægt í tilslakanir þótt að tölur um nýgreind smit síðustu daga hafi verið ánægjulegar. Vísir var í beinni útsendingu frá ráðherrabústaðnum og ræddi við ráðherra um leið og ríkisstjórnarfundi lauk. Í spilaranum hér fyrir neðan má sjá viðtal við heilbrigðisráðherra þar sem hún greinir frá helstu breytingum sem verða á samkomutakmörkunum. Hér fyrir neðan má svo sjá viðtal við Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra, sem kom af ríkisstjórnarfundi skömmu á undan heilbrigðisráðherra. Í vaktinni þar fyrir neðan má svo lesa um allt það helsta. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Mest lesið Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Innlent Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Innlent Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Innlent Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður Innlent Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Innlent Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Innlent Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Innlent Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag Innlent Fleiri fréttir Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Kennarar gengu út og nýr borgarstjórnarmeirihluti Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Svona skipta oddvitarnir stólunum Voru búin að segja að þeim hugnaðist ekki tillaga Ástráðs Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur“ Skilur vel reiðina sem blossi upp Útganga kennara kom formanninum í opna skjöldu Gátu ekki lent í þoku í Osló því flugmenn eru enn í þjálfun á Airbus Svona var blaðamannafundur nýs meirihluta í Reykjavík Óljóst með skólahald eftir helgi Trans fólk veigri sér við ferðalögum til Bandaríkjanna Nýr meirihluti muni ekki vaða í stærri deilumál Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Jöklar jarðar rýrna mun hraðar en áður vegna aukinnar hlýnunar Niðurstöðu beðið í Karphúsinu Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Búrfellslundur verður Vaðölduver Uggur í fólki og Hinsegin kórinn hættur við að taka þátt í World Pride í Washington Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Zúistabræður telja sig ekki hafa fengið sanngjarna meðferð Sjá meira