Samkvæmt sömu heimildum var starfsfólk hjá heilbrigðiseftirlitinu nokkuð hissa enda brýnt fyrir fólki sem fer í sýnatöku að vera í einangrun þar til að niðurstaða liggur fyrir.
Mun Sigrún hafa borið fyrir sig að of mikið væri að gera í vinnunni. Sex heilbrigðisfulltrúar starfa hjá eftirlitinu á Selfossi auk Sigrúnar sem er framkvæmdastjóri.
Hlutverk heilbrigðiseftirlitsins er samkvæmt því sem fram kemur á heimasíðu þess að vinna að bættu heilbrigðiseftirliti á Suðurlandi, annast fræðslu fyrir almenning og efla samvinnu við önnur yfirvöld og aðila sem vinna að þessum málum.
Vísir sendi fyrirspurn á Sigrúnu vegna málsins.
„Ég hef farið yfir þetta með starfsmönnunum en það er ekkert meira um það að segja,“ sagði Sigrún í stuttu svari við fyrirspurn Vísis.