Albumm

Árstíðir kveðja árið með lofsöng

Ritstjórn Albumm skrifar
Hljómsveitin Árstíðir.
Hljómsveitin Árstíðir.

Fyrir skömmu sendi hljómsveitin Árstíðir frá sér myndband við lagið Passion.

„Flestir tónlistarmenn hafa þurft mikla ástríðu til að komast í gegnum árið 2020 og gefast hreinlega ekki upp. Þess vegna fannst okkur við hæfi að kveðja þetta ár með lofsöng um ástríðu og von um bjartari tíma 2021,“ segir Ragnar Ólafsson söngvari.

Lagið Passion birtist plötu Árstíða er nefnist Nivalis, og var gefinn út 2018.

 Lagið verður síðasti myndbandssíngullinn af þeirri plötu áður en árstíðarmenn fara að hljóðrita sína næstu, sjöundu hljóðversplötu, snemma á nýju ári.

Árstíðir á Facebook og Instagram.


Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.