„Þetta eru aðallega sérnámslæknarnir, hjúkrunarfræðingarnir og sjúkraliðarnir sem eru í mikilli nálægð við sjúklingana sem ættu að vera fyrstir,“ segir Ragnar.
Hann tilheyrir forgangshópi 2 en í hópum 1 og 2 eru starfsmenn bráðamóttaka og gjörgæsludeilda, starfsmenn sem sinna Covid-19 sjúklingum, þeir sem annast sýnatökur vegna Covid-19 og starfsmenn hjúkrunar- og dvalarheimila.
Ragnar segist afar ánægður með þær línur sem hafa verið lagðar í reglugerð um bólusetningarnar gegn Covid-19, þar sem framlínustarfsmenn og aldraðir eru í forgangi.
„Við vitum það að dánartíðnin eykst eftir sjötugt og er mjög há hjá þeim sem eru í elstu aldurshópunum og ég held að við eigum að beina sjónum okkar að þeim hóp fyrst.“
Mikilvægast að sinna fólkinu
Ragnar segir ástandið á göngudeild Covid-19 hafa verið gott í desember. Verið sé að beita lyfjum sem hafa sannað gildi sitt og þá skipti sköpum að verið sé að „grípa“ fólk snemma.
„Við erum alltaf að uppgötva einhverjar nýjungar en það hefur sýnt sig að það að sinna fólki er besta meðalið,“ segir hann og vísar þar til hins góða eftirlits sem haft er með þeim sem hafa greinst.
„Við erum að kalla fólk inn og meta og meðhöndla. Og þetta hefur gert það að verkum að innlagnar- og dánartíðnin er minni en ella hefði verið.“
Spurður segist Ragnar ekki vita til þess að nokkur heilbrigðisstarfsmaður hyggist afþakka bólusetningu.
„Við ætlum öll að láta bólusetja okkur,“ segir hann. „Ég hef ekki heyrt um nokkurn mann sem ætlar ekki að taka þátt. Það væri þá ekki nema viðkomandi væri óléttur eða með bráðaofnæmi.“
Dagurinn í dag sé mikill gleðidagur.
„Ég treysti yfirvöldum og þríeykinu til að forgangsraða rétt og þigg bólusetningu þegar kemur að mér,“ segir Ragnar. „En mér liggur ekkert á.“