Alfreð er ekki þekktur fyrir bakstur og klúðrar yfirleitt öllu sem hann bakar. Í þáttunum Jólagrill BBQ kóngsins ákvað hann að gera blauta súkkulaði köku á grillinu. En það heppnaðist ekki betur en svo að kakan brann og var allt annað en blaut í miðjunni. Kakan var sett á disk en leit alls ekki vel út á mynd og voru því góð ráð dýr og ekki nægur tími til þess að gera uppskriftina aftur.
Alfreð náði þá í balsamik edik sem er einmitt svart og glansandi á litinn og blandaði saman við kökuna og stráði svo smá ediki yfir kökuna í endann. Eftir þessa björgun leit kakan furðu vel út á mynd en var gjörsamlega óæt fyrir vikið.
Alfreð sagði frá þessu í Bítinu á Bylgjunni á dögunum.
Hér að neðan má síðan sjá atriðið sjálft úr þáttunum.