Argentínska þingið heimilar þungunarrof Atli Ísleifsson skrifar 30. desember 2020 08:00 Stuðningsmenn lagabreytingarinnar fögnuðu á götum Buenos Aires í nótt eftir að niðurstaða öldungadeildarinnar lá fyrir. AP Meirihluti öldungadeildar argentínska þingsins hefur samþykkt að konum verði heimilt að gangast undir þungunarrof fram í fjórtándu viku meðgöngu. Spennustigið á götum höfuðborgarinnar Buenos Aires hefur verið hátt síðustu vikurnar vegna málsins þar sem stuðningsmenn og andstæðingar lagabreytingarinnar hafa safnast saman.
Konur í Argentínu hafa til þessa einungis fengið að gangast undir þungunarrof ef þær hafa orðið barnshafandi af völdum nauðgunar, eða þá að líf þeirra sé talið í hættu. Lagabreytingin, sem neðri deild þingsins samþykkti fyrr í mánuðinum og öldungadeildin samþykkti í nótt, veitir konum heimild til að rjúfa þungun fram í fjórtándu viku meðgöngu. Öldungadeildin hafnaði sambærilegri breytingu á lögum í atkvæðagreiðslu fyrir um tveimur árum þegar 38 þingmenn greiddu atkvæði gegn, en 31 með. Eftir maraþonumræður greiddu nú 38 þingmenn atkvæði með breytingunni, en 29 gegn. Einn þingmaður sat hjá. Áður hafði forsetinn Alberto Fernández sagst vera samþykkur lagabreytingu, en kaþólska kirkjan í Argentínu, sem hefur mikil ítök í landinu, lagðist gegn henni. Um mikil tímamót er að ræða í Argentínu þar sem fyrir finnst einhver strangasta löggjöf heims er varðar þungunarrof.
Argentína Þungunarrof Mest lesið Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Erlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Innlent Áfram talinn vanhæfur til að taka sæti í ráðinu Innlent Segir ÍR að slökkva á skiltinu Innlent „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Erlent Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Innlent Þrír fundust látnir í Noregi Erlent Fleiri fréttir ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Á annað hundrað látnir í Mjanmar „Það er skítkalt hérna“ Sænskur blaðamaður handtekinn í Tyrklandi Fyrsta árás Ísraelshers í Líbanon eftir vopnahlé Óttast að mörg hundruð séu látin Áhöfn kafbátsins sem sökk í Rauðahafi yfirheyrð Sjá meira