Rafíþróttir

Bein útsending: Annar dagur Stöð 2 eSport

Tinni Sveinsson skrifar
Rafíþróttir á Íslandi hafa eignast nýtt heimili á Stöð 2 eSport.
Rafíþróttir á Íslandi hafa eignast nýtt heimili á Stöð 2 eSport.

Útsendingar á nýrri sjónvarpsstöð, Stöð 2 eSport hófust í gær klukkan 16.

Þær halda áfram í dag þegar sýnd verða úrslit í Counter Strike á 2. keppnistímabili Lenovo-deildarinnar í fyrra. Í kvöld taka svo við úrslit í Counter Strike á Reykjavíkurleikunum í fyrra.

Íslenska rafíþróttadeildin, sem nú ber heitið Vodafone-deildin, rúllar síðan aftur af stað á miðvikudag. Þá verður fyrsta beina útsendingin frá nýrri leiktíð þegar Fylkir og Þór Akureyri keppa í Counter-Strike.

Vonir standa jafnframt til þess að hægt verði að senda út frá leikjum landsliðs Íslands í Pro Evolution Soccer á mánudaginn.

Stöð 2 eSport verður í opinni dagskrá á Vísi alla helgina. Hægt er að horfa á stöðina í spilaranum hér fyrir neðan.

Dagskráin í dag

12:35 - 14:30 Lenovo deildin - Úrslit í Counter Strike

Útsending frá úrslitum í Counter Strike á 2. keppnistímabili Lenovo-deildarinnar þar sem Dusty mætti Seven í Háskólabíó.

14:30 - 17:00 Lenovo deildin - Úrslit í League of Legends

Útsending frá úrslitum í Counter Strike á 2. keppnistímabili Lenovo-deildarinnar þar sem Dusty mætti Seven í Háskólabíó.

17:00 - 18:55 RIG2020 - CSGO Finals - Leikur 1

Útsending frá leik 1 af 5 í úrslitum Counter Strike á Reykjavíkurleikunum þar sem Fylkir mætti TDL Vodafone.

18:55 - 20:15 RIG2020 - CSGO Finals - Leikur 2

Útsending frá leik 2 af 5 í úrslitum Counter Strike á Reykjavíkurleikunum þar sem Fylkir mætti TDL Vodafone.

20:15 - 22:15 RIG2020 - CSGO Finals - Leikur 3 og Leikur 4

Útsending frá leik 3 og 4 af 5 í úrslitum Counter Strike á Reykjavíkurleikunum þar sem Fylkir mætti TDL Vodafone.

22:15 - 23:15 RIG2020 - CSGO Finals - Leikur 5

Útsending frá leik 5 af 5 í úrslitum Counter Strike á Reykjavíkurleikunum þar sem Fylkir mætti TDL Vodafone.






×