Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14 í Skógarhlíð 14. Fundurinn verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 3 auk þess sem fylgst verður með gangi mála í textalýsingu hér að neðan.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Alma D. möller landlæknir, og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir munu fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19 hér á landi.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, verður gestur fundarins í dag og mun hún ræða þær áskoranir sem blasa við lögreglunni í ljósi COVID-19.
Uppfært: Fundinum er lokið en upptöku má sjá hér að neðan.