Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðuðu til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14:00 í Skógarhlíð 14.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Alma D. Möller landlæknir fóru yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19 hér á landi. Gestir fundarins voru Páll Matthíasson forstjóri Landspítala og Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands.
Streymt var beint frá fundinum hér á Vísi og má sjá hann í heild sinni í spilaranum hér að ofan. Þá var honum einnig streymt á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísir auk þess sem nálgast má beina textalýsingu í vaktinni hér fyrir neðan.