Kári segir Bretum að veiran hafi „mjög snemma“ verið útbreidd þar Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 28. apríl 2020 08:47 Kári Stefánsson á fundinum í dag. Vísir/Vilhelm
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir í viðtali við breska fjölmiðilinn Sky News að miðað við þau gögn sem liggi fyrir sé ljóst að kórónuveiran hafi verið útbreidd í Bretlandi mjög snemma í faraldrinum sem henni hefur fylgt. Kári settist niður með fréttamanni Sky í höfuðstöðvum Íslenskrar erfðagreiningar, en Sky News hefur á undanförnum dögum fjallað ítarlega um viðbrögð Íslands við kórónuveirunni. Í viðtalinu lýsir Kári því sem komið hefur fram í vísindagrein vísindamanna Íslenskrar erfðagreiningar og íslenskra heilbrigðisstarfsmanna um að á meðan yfirvöld hafi haft augun á skíðasvæðum í Austurríki og Ítalíu, hafi veiran laumað sér hingað frá ýmsum löndum. „Þar höfum við helst tekið eftir Bretlandi. Þannig að það er útlit fyrir að veiran hafi verið tiltölulega útbreidd í Bretlandi mjög, mjög snemma í þessum faraldri,“ segir Kári en vísindamenn geta fengið mjög góðar vísbendingar um uppruna hverrar veiru með því að skoða stökkbreytingar hennar. Kórónuveiran hefur farið illa með Bretland en þar hafa nú 21 þúsund látist af völdum hennar, samkvæmt opinberum tölum. Breskir fjölmiðlar hafa þó dregið þessa tölu í efa og fjallað um að hún gæti verið allt að tvöfalt hærri.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bretland Íslensk erfðagreining Mest lesið „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Innlent Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Innlent Fer fram á stjórnsýsluúttekt á aðdraganda lokunarinnar Innlent Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Innlent Samþykktu að breyta skráningu svo þiggja megi styrki Innlent „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Innlent Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Erlent Fleiri fréttir Velta barna á veðmálasíðum fimmfaldast milli ára Veðmál barna og verslunarmiðstöð í Vogum Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Segir málefnasamninginn ófjármagnað orðagjálfur Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Vilja skýrslu frá ráðherra um lokun flugbrautar Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Tíu ára stelpa frá Vík í úrslitum í Eurovision barna í Danmörku Samþykktu að breyta skráningu svo þiggja megi styrki Fer fram á stjórnsýsluúttekt á aðdraganda lokunarinnar Stjórnsýsluúttekt á lokun flugbrautarinnar og endurgreiðsla styrkja Skora á fulltrúa sveitarfélaganna að greina frá sinni afstöðu „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Kennarar gengu út og nýr borgarstjórnarmeirihluti Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Svona skipta oddvitarnir stólunum Voru búin að segja að þeim hugnaðist ekki tillaga Ástráðs Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag „Þetta eru mikil vonbrigði fyrir okkur“ Skilur vel reiðina sem blossi upp Útganga kennara kom formanninum í opna skjöldu Gátu ekki lent í þoku í Osló því flugmenn eru enn í þjálfun á Airbus Sjá meira