Um er að ræða stúlku, sjöunda barna bændanna á bænum Kastalabrekku í Ásahreppi í Rangárvallasýslu. Þau heita Víðir Reyr Þórsson og Eydís Hrönn Tómasdóttir. Stúlkan er tíunda barn Viðis. Hún vóg 3860 grömm og var 51 cm löng og fæddist í Sigurkufli á ganginum fyrir framan fæðingarstofuna.
Systkin hennar eru; Veigar Þór (2006), Vikar Reyr (2008), Víðir Snær (2013), Viljar Breki (2014), Viðja Karin (2016) og Vopni Freyr (2018). Börn Víðis eru Natan Ögri (1993), Magnus Vigri (1995), Svandis Viðja (1998).

Alls fæddust 47 börn á fæðingdeildinni á Selfossi á árinu 2020, átján stúlkur og tuttugu og níu drengir. Auk þess komu tvö börn inn á deildina, sem fæddust í heimahúsum.
Hvað er Sigurkufl?
Það að fæðast í sigurkufli hefur löngum verið talið gæfumerki víða um heim. Sumstaðar hefur það einnig verið álitið forboði skyggnigáfu. Í bókinni Íslenskir þjóðhættir eftir Jónas Jónasson 3. útg. Rvk: 1961 stendur: "Lán eitt hið mesta er það að fæðast í sigurkufli. Sigurkufl er líknarbelgurinn utan um barnið kallaður, ef hann er heill og órifinn, og verður sá sem fæðist í honum fyrirtaks lánsmaður. Sigurkuflinn átti að hirða og sá sem í honum fæddist átti að geyma hann alla ævi, enda var hann til margra hluta kröftugur, sögðu sumir að ef menn beri hann á sér verði þeir skyggnir og enginn galdur vinni á þeim og hafi þeir sigur í hverju máli ."