Óskar Reykdalsson forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir að nú sé verið að klára að bólusetja forgangshópa í samfélaginu og síðan verði eldra fólk bólusett. Þegar komi síðan að almenningi í yngri hópum verði stuðst við upplýsingar um sjúkdómsgreiningar úr sjúkraskrám.
Hins vegar geta verið til einstaklingar sem telji sig vera í forgangshópi en séu ekki endilega skráðir með þeim hætti.
Geta þeir á einhvern hátt gefið sig fram til að komast í bólusetningu þegar kemur að almenningi?

„Ég held að það væri eðlilegast að vera í samráði við sinn heimilislækni um að þetta sé allt skráð,“ segir Óskar. Allir væru skráðir á heilsugæslustöð og eða hjá sérfræðilækni. Í fyrsta kastinu verði farið heim til eldra fólks í heimahjúkrun og íbúakjörnum sem ekki komist á staðinn eftir kvaðningu. Aðrir í efri aldurshópum fái tíma með skilaboðum í heilsuveru.
„Og síðan til að tryggja að allir fái sama möguleika munum við sjá til þess að það verði auglýstur ákveðinn tími dagsins þar sem þeir sem ekki hafa fengið boð en eru samt í þeim aldurshópi muni mæta,“ segir forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Sami háttur verði væntanlega hafður á þegar komi að öllum almenningi. En Óskar sagði fyrir nokkrum vikum að best yrði ef nægt bóluefni væri til, að ljúka bólusetningum af á nokkrum helgum og styðjast þar við kjörstaðafyrirkomulag almennra kosninga.
„Já ég lifi í voninni. Það er ekki búið að slökkva þá von að þetta sé mögulegt. Það eru þeir Þórólfur og Kári sem eru að vinna í því máli. Ég vona það innilega. Það væri mikill léttir fyrir okkur Íslendinga og verulega mikil hagsæld líka fólgin í því. Ef við lítum líka á fjárhagslegu hliðina fyrir uitan allan heilsufars ávinninginn sem við fáum af því,“ segir Óskar Reykdalsson.