Alls bárust 729 myndir frá íslenskum blaðaljósmyndurum í ár og völdu sjö dómarar 98 þeirra á sýninguna í Ljósmyndasafninu. Þar að auki valdi dómnefndin sigurvegara ársins.
Mynd ársins tók Þorkell Þorkelsson, ljósmyndari Landsspítala, og fékk hann einnig verðlaun fyrir myndaröð ársins.
Aðrir ljósmyndarar sem voru verðlaunaðir voru Kristinn Magnússon, ljósmyndari Morgunblaðsins, sem átti bestu mynd í fréttaflokki og tímaritaflokki, Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, sem átti íþróttamynd ársins og umhverfismynd ársins, Golli / Kjartan Þorbjörnsson, ljósmyndari Iceland Review, sem átti portrett ársins og Valgarður Gíslason ljósmyndari Fréttablaðsins sem átti daglegt líf mynd ársins.
Hér að neðan má sjá myndirnar og umsögn dómnefndar.
Mynd ársins:
Þorkell Þorkelsson

Umsögn dómnefndar:
Fallegt augnablik í lok krefjandi vaktar á Landspítalanum. Fegurð í stofnanalegu og sterílu umhverfi. Værð og ró er í myndinni en á sama tíma tregi og þreyta. Táknræn mynd fyrir ástand ársins sem flestir eiga auðvelt með að tengja við, handþvottur, spritt og þreyta.
Fréttamynd ársins:
Kristinn Magnússon

Umsögn dómnefndar:
Sterk frásögn í einum ramma af stórri frétt. Vel uppbyggð mynd sem segir margar sögur í einu. Hver einasti hluti myndarinnar hefur tilgang og minnir hún á frásagnarmálverk. Myndin sýnir vel alvarleika atburðarins og þær gríðarlega erfiðu aðstæður sem sköpuðust í eldsvoðanum.
Íþróttamynd ársins:
Vilhelm Gunnarsson

Umsögn dómnefndar:
Í samkomubanni þar sem æfingastöðvar voru lokaðar og mótshald af skornum skammti þurfti afreksíþróttafólk að finna leið til að halda æfingum áfram. Íþróttamynd ársins kjarnar/sýnir þrautseigju og útsjónarsemi íþróttafólks í erfiðum aðstæðum sem þrátt fyrir það gátu verið ansi
Tímaritamynd ársins:
Kristinn Magnússon

Umsögn dómnefndar:
Tæknilega vel útfærð og stílíseruð mynd. Myndin er margskipt og skemmtilega hlaðin án þess að vera ofhlaðin. Mónótónísku greinarnar, laufin og könglarnir efst í rammanum mynda jafnvægi við litum og köku hlaðinn neðri hlutann. Með dulúðlegum fljótandi kertum sem tengja allt saman.
Umhverfismynd ársins:
Vilhelm Gunnarsson

Umsögn dómnefndar:
Óvenjuleg og listræn flugeldamynd sem hefur fagurfræðilegar skírskotanir í ýmsar áttir. Á ægifagran hátt minnir hún okkur á ógnandi nærveru kórónuveirunnar. Táknrænn endapunktur á krefjandi ári.
Daglegt líf mynd ársins:
Valgarður Gíslason

Umsögn dómnefndar:
Táknræn mynd fyrir sóttkvíarlíferni. Maðurinn rennur saman við umhverfi sitt og híbýli. Gluggarnir segja hver sína söguna og ímyndunnaraflið fer á flug. Hvernig var sóttkvíin bak við þessi gluggatjöld? Netflix búið og bækurnar staflast upp í glugganum.
Portrettmynd ársins:
Golli/Kjartan Þorbjörnsson

Umsögn dómnefndar:
Falleg, óræð og draumkennd mynd. Viðfangsefnið liggur og horfir upp á skýin en á sama tíma er eins og hún sjálf fljóti um í skýjabreiðunni. Óvenjulegt og vel útfært portrett. Myndbyggingin gefur tilfinningu fyrir óendanleika og ró.
Myndasería ársins:
Þorkell Þorkelsson

Umsögn dómnefndar:
Einlæg og falleg frásögn af kvöldvakt á Landspítalanum í miðjum heimsfaraldri. Ljósmyndarinn færir okkur heim sem fáir hafa aðgang að. Myndaröðin er heildstæð og sterk frásögn en jafnframt getur hver mynd staðið sér. Vel ljósmynduð sería við krefjandi aðstæður á erfiðum tímum.






