Hamfarir Skaftárelda á árunum 1783 til 1784 eru rifjaðar upp í þættinum Um land allt á Stöð 2, sem að þessu sinni er um Meðalland. Það er sú sveit sem varð fyrir einna mestum búsifjum þegar hraunið flæddi ofan af hálendinu, um farvegi Skaftár og Hverfisfljóts, og yfir láglendissveitir.
„Það eyðir tuttugu bæjum í allt,“ segir Lilja Magnúsdóttir, kynningarfulltrúi Skaftárhrepps, sem er meðal viðmælenda í þættinum.
Margir bæjanna sem eyddust voru í Meðallandi, þeirra á meðal kirkjujörð sveitarinnar, Hólmasel, og bæir þar í kring. Kirkjan hvarf undir hraunið aðeins tveimur vikum eftir að gosið hófst. Einnig hröktust margir bæir til og voru síðar endurreistir á nýjum stað.

Helsta heimildin er eldklerkurinn Jón Steingrímsson sem upplifði sjálfur atburðina og skráði í riti sem hann nefndi Fullkomið skrif um Síðueld en oftast kallað Eldritið.
„Jón Steingrímsson lýsir líka landinu hér fyrir eld. Þá lýsir hann þessu svæði sem valllendissvæði, grasi vöxnu með lækjum og hvömmum, - bara ofsalega fallegu svæði. Svo fer það bara undir þetta hrikalega hraun,“ segir Lilja.
Þátturinn um Meðalland fjallar þó að mestu um ánægjulega þróun sveitarinnar á síðustu árum. Eftir ládeyðu hefur ungt fólk tekið þar við bújörðum og hafið uppbyggingu. Þá er eitt stærsta nautgripabú landsins að verða til á Sandhóli samhliða nýsköpun í ræktun og vinnslu nytjajurta.
Hér má sjá kynningarstiklu þáttarins sem er á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 19.10 í kvöld: